Vefur Grunnskólans uppfærður og endurbættur
| 28. ágúst 2012
Undanfarna viku er búið að gera miklar breytingar á vef Grunnskólans á Hólmavík, en hann má sjá með því að smella hér. Breytingarnar á vefnum hafa helst miðað að því að gera hann notendavænni, sérstaklega með tíðari uppfærslum, hnitmiðaðri texta og auðveldara aðgengi fyrir börn, foreldra og alla aðra sem tengjast skólasamfélaginu í Strandabyggð að hagnýtum upplýsingum um skólastarfið. Fólk er hvatt til að skoða vefinn reglulega og nýta sér hann til hins ítrasta.