Vel heppnaður íbúafundur
Vel heppnaður íbúafundur var haldinn í gær í Hnyðju. Þar voru kynntar hugmyndir að breytingum á lóð leikskólans og næsta umhverfis, sérstaklega hinu megin við Braggann. Það var Hildur Dagbjört Arnardóttir, landslagsarkitekt frá VERKÍS, sem kom og viðraði sínar hugmyndir. Góð umræða var á fundinum og margar gagnlegar ábendingar komu frá íbúum.
Þetta verkefni er liður í hönnun opinna svæða á Hólmavík og var samþykkt af fyrri sveitarstjórn. Síðan hefur verið unnið að hönnun hugmynda, og m.a. leitað til krakka og starfsfólks Leikskólans eftir hugmyndum, á sérstökum vinnufundi sem haldinn var sl haust. Og í gær var komið að því að kynna þessar hugmyndir fyrir íbúum.
Núverandi sveitarstjórn vinnur þetta áfram i samráði við Hildi Dagbjörtu og frekari hugmyndir og útfærslur munu síðan líta dagsins ljós þegar fram í sækir. Þá er framundan að hanna umhverfi íþróttamistöðvarinnar með sama hætti.
Um leið og við þökkum fyrir góða þátttöku á fundinum, hvetjum við íbúa til að koma skoðunum sínum og ábendingum á framfæri til okkar sem fyrst, þannig að hægt sé að koma þeim inn í þessa vinnu.