Verðfyrirspurn varðandi málun á Grunnskóla Hólmavíkur
„Strandabyggð gerir hér með verðfyrirspurn varðandi málun á Grunnskóla Hólmavíkur.
Um er að ræða efri hæð yngri hluta skólans auk anddyris og tveggja skólastofa í eldri hluta.
VERKÍS hefur gert verklýsingu og magnskrá og eru þessi gögn aðgengileg hér og skulu fyrirspurnir sendar á strandabyggd@strandabyggd.is Áhugasamir geta einnig haft samband við Sigurð Marinó Þorvaldsson, forstöðumann áhaldahúss, í síma 894-4806, eða á netfangið siggimarri@strandabyggd.is
Tilboðum skal skilað inn á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is, merkt „grunnskóli – málun“, fyrir kl 16, mánudaginn 24. júlí n.k.
Strandabyggð áskilur sér rétt til að taka þeim tilboðum sem metin eru hagstæðust eða hafna öllum.
Allar frekari upplýsingar veitir Sigurður Marinó í síma 894-4806“