Verðfyrirspurn vegna lagningar á ljósleiðara í Strandabyggð
Veitustofnun Strandabyggðar óskar eftir að áhugasamir aðilar gefi einingaverð í eftirfarandi vinnuþætti vegna fyrirhugaðrar vinnu við lagningu ljósleiðara í Strandabyggð á árinu 2017.
Verkið felst í því að plægja niður annarsvegar ljósleiðara og hinsvegar ljósleiðara og háspennustreng saman, fleygun í skurði og gröft við hús. Heildarlengd á plægingu er 25 til 30 kílómetrar en ekki er enn ljóst hvað mikill hluti verksins er plæging á ljósleiðara sérstaklega eða ljósleiðara og háspennustreng saman. Almennt er reiknað með að jarðvegur sé góður.
Gögn fást afhent á skrifstofu Strandabyggðar eða með því að senda beiðni á jongisli@strandabyggd.is
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda póst á jongisli@strandabyggd.is eða í síma 6617061.
Skila á gögnum á skrifstofu Strandabyggðar fyrir kl. 11 fimmtudaginn 23. mars 2017 í umslögum merktum „ljósleiðaralögn í Strandabyggð 2017“.
Hér má finna eyðublað
Veitustofnun Strandabyggðar