Verðfyrirspurn vegna skólaaksturs
Þorgeir Pálsson | 04. ágúst 2023
Strandabyggð gerir hér með verðfyrirspurn varðandi skólaakstur fyrir skólaárið 2023-2024.
Um er að ræða akstur með skólabörn leik- og grunnskóla í dreifbýli í Strandabyggð. Tilboðsgjafi skal veita upplýsingar um bílakost, mönnun, bakgrunn, reynslu og þekkingu á staðháttum. Tilboðsgjafi skal hafa hreina sakaskrá.
Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri, Þorgeir Pálsson í síma 899-0020. Einnig má senda fyrirspurn á netfangið thorgeir@strandabyggd.is
Frestur til að skila inn tilboðum er til loka dags 13. ágúst n.k. Strandabyggð áskilur sér rétt til að taka þeim tilboðum sem metin eru hagstæðust eða hafna öllum.