Verðfyrirspurn vegna skólamötuneytis
Þorgeir Pálsson | 05. júlí 2023
Sveitarfélagið Strandabyggð gerir hér með verðfyrirspurn vegna skólamötuneytis
- Um er að ræða eldun skólamáltíða fyrir um 40 nemendur grunnskóla Hólmavíkur og um 20 nemendur leikskólans Lækjarbrekku, samkvæmt yfirliti á hverjum tíma
- Um er að ræða heitar og kaldar máltíðir alla skóladaga. Taka skal mið af manneldismarkmiðum Manneldisráðs og ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um innihald matar og uppsetning matseðils
- Starfsmenn sem vilja kaupa mat, gera um það samkomulag við matráð
- Afhenda skal máltíðir mánudaga til og með föstudaga. Matur skal sóttur af starfsfólki sveitarfélagsins. Starfsmenn grunnskóla sjá einnig um skil á áhöldum og hitakössum
- Áherslur í matseðli skulu vera:
- Í hádegi sé heit máltíð í boði, amk fjóra daga vikunnar, en köld máltíð ekki oftar en einu sinni í viku; t.d. grautur eða súpa eða köld brauðmáltíð með mjólkurmat
- Alltaf sé einhvers konar ávextir og/eða grænmeti í boði
- Hugað sé að magni fitu, próteins, sykurs, og annara kolvetna í samræmi við manneldismarkmið þegar hráefni til matargerðar er valið
- Sykur og fituríkan mat ætti að nota mjög hóflega
- Grófkorna brauð sé notað fremur en fínt
- Boðið verði upp á fisk, amkl tvisvar í viku og þá frekar að notast við ferskan fisk
- Reyktan og saltan mat ætti að hafa mjög sjaldan á borðum og helst ekki oftar en tvisvar í mánuði. Farsvörur og naggar séu sjaldnar á boðstólum en einu sinni í viku
- Sveitarfélagið leggur áherslu á að nýta hráefni úr heimabyggð eins og kostur er.
- Almennt skal styðjast við leiðarvísi Landlæknis um um fæðuval og áherslur í matarframboði.
- Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Strandabyggðar. Tilboðum skal skila til skrifstofu Strandabyggðar á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is merkt „Skólamatur, 2023-2024“ fyrir miðnætti 21.7.23
- Strandabyggð áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem metið er hagstæðast eða hafna öllum.