Verkefnastjóri Hamingjudaga
Ingibjörg Benediktsdóttir, formaður Tómstunda-, Íþrótta- og menningarnefndar (TÍM) Strandabyggðar hefur verið ráðin sem verkefnastjóri Hamingjudaga 2015 í forföllum tómstundafulltrúa. Sem formaður TÍM nefndar hefur Ingibjörg tekið þátt í undirbúningi hátíðarinnar og er því ágætlega inn í málum en auk þess munu aðrir starfsmenn sveitarfélagsins vera henni til halds og trausts svo Hamingjudagar 2015 verða að raunveruleika – 10 árið í röð.
Þeir sem þurfa og vilja setja sig í samband við verkefnastjóra Hamingjudaga geta sent póst á Ingibjörgu á netfangið ingibjorgben@strandabyggd.is eða haft samband í síma 6630497. Ingibjörg mun jafnframt taka við öllum gögnum og samskiptum frá tómstundafulltrúa sem snúa að undirbúningi og framkvæmd Hamingjudaga.
Við óskum Ingibjörgu góðs gengis og hlökkum til Hamingjudaga 2015