Viðhald á íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins
| 16. febrúar 2011
Starfshópur hefur lokið við úttekt á viðhaldsþörf á öllu íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins Strandabyggðar. Stefnt er að því að hefja viðhald á flestum íbúðunum núna í febrúar og mars og hafa starfsmenn áhaldahúss þegar byrjað á þeirri vinnu. Ljóst er að þörf á viðhaldi er mismikil, margt verður hægt að vinna fljótt og vel meðan annað krefst lengri tíma og stærri aðgerða. Er það von okkar að viðhaldsvinnan valdi íbúum sem minnstri truflun.