Viltu vera í verkefnastjórn?
| 22. janúar 2020
Strandabyggð tekur nú þátt í verkefninu Brothættar byggðir, sem rekið er af Byggðastofnun. Mikilvægur liður í verkefninu er starf verkefnastjórnar, sem í sitja m.a. fulltrúar íbúa. Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur ákveðið að gefa íbúum kost á að bjóða sig fram til setu í verkefnastjórninni. Frestur til að skila inn tillögum er til miðnættis 31. janúar n.k. og skal tillögum skilað inn á netfangið: strandabyggd@strandabyggd.is eða í afgreiðslu sveitafélagsins. Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri, í 899-0020.