Vinabæjarmót í Tanum
| 08. júlí 2010
Vinabæjarmót verður haldið í Tanum í Svíþjóð dagana 23.-26. september nk. og hefur sveitarstjórn Strandabyggðar ákveðið að styrkja allt að þrjá til fararinnar. Æskilegt er að þátttakendur hafi gott vald á norðurlandamálum og hafi þekkingu á sveitarstjórnarmálum. Áhugasamir skili inn umsókn á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið holmavik@holmavik.is fyrir kl. 17.00 miðvikudaginn 15. júlí nk.
Boðsbréf frá Tanum má finna undir þessum tengli.
Nánari upplýsingar verða gefnar í síma 865-3838,
formaður Menningarmálanefndar Strandabyggðar.