Vinnuskóli í Strandabyggð 2024
Salbjörg Engilbertsdóttir | 13. maí 2024
Vinnuskóli Strandabyggðar verður með breyttu sniði í sumar þar sem ekki hefur tekist að ráða umsjónaraðila nema hluta sumars. Reynt verður að bjóða sama tímafjölda á aldursár eins og áður.
Í boði verða eftirfarandi störf fyrir árganga 2011-2009:
Leikskóli, létt störf við gæslu undir umsjón deildarstjóra og skólastjóra - eingöngu í júní
Félagsþjónusta, létt störf við liðveislu barna td. á sumarnámskeiðum - eingöngu í júní
Áhaldahús, fjölbreytt störf við fegrun umhverfis og eigna - eingöngu 8.-31 júlí, umsjón verður í höndum Halldórs Smára Arnarsonar
Ungmennum fæddum árin 2007-2008 er bent á að sækja um starf í áhaldahúsi
Sækja má um störfin á slóðinni hér fyrir 21. maí
Tímafjöldi fyrir hvern árgang er þessi: