Wilson Skaw
Þorgeir Pálsson | 24. apríl 2023
Kæru íbúar Strandabyggðar og aðrir áhugasamir,
Það er rétt að taka það fram, í ljósi umræðu og skrifa í fjölmiðlum, að engin formleg ákvörðun hefur verið tekin af sveitarstjórn Strandabyggðar varðandi komu Wilson Skaw til Hólmavíkur, hvað svo sem verður. Við höfum átt í samskiptum við hagsmunaaðila, Umhverfisstofnun og lögfræðing sveitarfélagsins og erum einfaldlega að skoða allar hliðar málsins út frá hagsmunum sveitarfélagsins.
Hitt er svo annað að við í Strandabyggð viljum auðvitað sjá farsæla lausn á þessu máli sem fyrst.
Kveðja
Þorgeir Pálsson
Oddviti