Hundahreinsun í Strandabyggð.
Hjalti Viðarsson dýralæknir í Búðardal verður með hundahreinsun í Áhaldahúsinu, fimmtudaginn 10. desember n.k. frá kl. 16.00-17.00. Ef annarar þjónustu er óskað má hafa samband í síma 434-1122. Þá ber að árétta að skrá þarf alla hunda og ketti á Hólmavík samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar um hunda- og kattahald í þéttbýli.
Áfram Vestur með Dýrafjarðargöngum.
1. Umhverfismat fyrir Dýrafjarðargöng. Kynning: Náttúrustofa Vestfjarða, Þorleifur Eiríksson.
2. Leiðaval yfir Dynjandisheiði. Kynning á störfum og verkefnum nefndar Samgönguráðherra um heilsársveg yfir Dynjandisheiði, Gísli Eiríksson Vegagerð ríkisins.
3. Stækkun samgöngu- og atvinnusvæðis með heilsárs samgöngum. Ávörp: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri, Smári Haraldsson forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Sigurður Jón Hreinsson iðnfræðingur 3xTechnology, Eggert Stefánsson rafeindavirki Vodafone og Kristján Haraldsson orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða.
4. Ávörp fulltrúa þingflokka á Alþingi.
5. Ályktun fundarins.
Aðgerðarhópurinn ÁFRAM VESTUR.
Aðalskipulag Strandabyggðar
Unnið er að gerð Aðalskipulags fyrir Strandabyggð og er það Landmótun sem annast það verkefni. Búið er að setja inn ýmis gögn er varða gerð skipulagsins inn á vefsíðu Strandabyggðar og er hægt að nálgast þau hér til vinstri undir tenglinum "Aðalskipulag". Eru íbúar hvattir til að kynna sér gögnin og séu einhverjar athugasemdir eða ábendingar má koma þeim áleiðis til skrifstofu Strandabyggðar.
Íbúafundur
Þriðjudaginn 10. nóvember verður haldinn íbúafundur í Félagsheimilinu á Hólmavík og hefst fundurinn kl. 19:30. Munu starfsmenn Landmótunar kynna þar stöðu mála við gerð nýs aðalskipulags fyrir Strandabyggð. Eru íbúar hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér framkomnar tillögur sem og til að koma athugasemdum á framfæri, ef einhverjar eru.