A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kynningarfundur á "Vistvernd í verki".

| 06. janúar 2010

Fimmtudaginn 7. janúar kl. 19:30 verður haldinn kynningarfundur í Félagsheimilinu um umhverfisverkefnið "Vistvernd í verki" sem er alþjóðlegt fræðsluverkefni er miðar að því að hvetja samfélög til að tileinka sér vistvænan lífsstíl og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda.  Býðst íbúum Strandabyggðar nú að taka þátt í visthóp þar sem Strandabyggð hefur samþykkt að taka þátt í verkefninu.  Íbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér verkefnið.

Visthópur samanstendur af 5-8 manns sem hittast á 6 fundum þar sem farið er yfir mikilvæga þætti í rekstri heimilanna s.s. meðhöndlun úrgangs, rafmagns-, hita- og vatnsnotkun, samgöngumál og innkaup.  Munu leiðbeinendur halda utan um hópana og útdeila verkefnum sem felast í því að mæla ofangreinda þætti og leita leiða til að  spara.  Bera þátttakendur saman bækur sínar og leita sameiginlegra úrlausna á viðfangsefninu.  Í lok námskeiðar skila þátttakendur niðurstöðum mælinga sem gerir kleift að meta sparnað heimilanna og um leið árangurinn af visthópastarfinu.  Nánari upplýsingar er hægt að finna undir liðnum Tilkynningar hér að neðan.

Opnun móttökustöðvar Sorpsamlags Strandasýslu á Skeiði 3

| 10. desember 2009
Laugardaginn 12. desember verður formleg opnun móttökustöðvar fyrir flokkaðan úrgang á Skeiði 3 á Hólmavík.  Er það Sorpsamlag Strandasýslu sem mun sjá um rekstur stöðvarinnar og er ætlunin að opna einnig stöðvar á Drangsnesi, Borðeyri og Norðurfirði.  Munu íbúar og fyrirtæki geta komið með endurvinnanlegan úrgang á móttökustöðina en opið verður til að byrja með á föstudögum frá kl. 16:00-18:00, fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar milli kl. 15:00-17:00 og annan laugardag í hverjum mánuði  frá kl. 13:00-15:00.  Hægt verður að koma með sléttan pappír, dagblöð, tímarit, bylgjupappa, plastfilmu glæra og litaða, hart plast s.s. skyrdósir, málma, timbur, hjólbarða, rafmagnstæki, gler og spilliefni án gjalds. 

Vatnavinir Vestfjarða.

| 04. desember 2009
Þó svo að Vestfirðir séu lághitasvæði má finna mjög víða náttúrulaugar með heitu vatni.  Nú er hafin vinna við að þróa og markaðssetja þessar laugar og huga að lagfæringum á þeim.  Eru það Vatnavinir Vestfjarða sem hafa haft framgöngu um málið og fengið Viktoríu Rán Ólafsdóttur hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða sem verkefnastjóra.  Er hér um viðamikið verkefni að ræða sem vonandi kemur til með að skila inn fleiri ferðamönnum inn á svæðið.  Þá er einnig í bígerð að leggja grunn að uppbyggingu stærri heilsulinda og er þá einkum horft til Reykjaness og Reykhóla í því sambandi.  Er mikill áhugi á að koma upp þaraböðum á Reykhólum og heilsulind í Reykjanesi þar sem vatnið þar er ríkt af steinefnum.

Hundahreinsun í Strandabyggð.

| 04. desember 2009
 

Hjalti Viðarsson dýralæknir í Búðardal verður með hundahreinsun í Áhaldahúsinu, fimmtudaginn  10. desember n.k. frá kl. 16.00-17.00.  Ef annarar þjónustu er óskað má hafa samband í síma 434-1122.  Þá ber að árétta að skrá þarf alla hunda og ketti á Hólmavík samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar um hunda- og kattahald í þéttbýli.

Áfram Vestur með Dýrafjarðargöngum.

| 24. nóvember 2009
Haldinn verður baráttufundur á Ísafirði laugardaginn 28. nóvember 2009 frá kl. 11:30 til kl. 13:00 í Edinborgarhúsinu.  Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Umhverfismat fyrir Dýrafjarðargöng.   Kynning:  Náttúrustofa Vestfjarða, Þorleifur Eiríksson.
2. Leiðaval yfir Dynjandisheiði.  Kynning á störfum og verkefnum nefndar Samgönguráðherra um heilsársveg yfir Dynjandisheiði, Gísli Eiríksson Vegagerð ríkisins.
3. Stækkun samgöngu- og atvinnusvæðis með heilsárs samgöngum.  Ávörp: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri, Smári Haraldsson forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Sigurður Jón Hreinsson iðnfræðingur 3xTechnology, Eggert Stefánsson rafeindavirki Vodafone og Kristján Haraldsson orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða.
4. Ávörp fulltrúa þingflokka á Alþingi.
5. Ályktun fundarins.

Aðgerðarhópurinn ÁFRAM VESTUR.
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón