Byggingar-, umferðar- og skipulagsnefnd - 4. apríl 2011
Fundur Byggingar-, umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar mánudaginn 4. apríl 2011
Mættir voru Hafdís Sturlaugsdóttir, Jóhann Lárus Jónsson, Rósmundur Númason og Inga Sigurðar
Fundarritari Inga Sigurðar
1. Grenndarkynning vegna Sorpflokkunnarstöðvar á Skeiði 3
Nefndin leggur til að allir þeir sem eru með atvinnustarfsemi á Skeið, íbúum í Lækjartúni 17-19-21-23-20-22-24 og Miðtúni 11-13 verði kynnt með grenndarkynningu fyrirhuguð breyting á lóðinni á Skeiði 3, úr iðnararsvæði í athafnasvæði. Leggur nefndin til að gögnin verði send og hlutaðeigandi gefinn kostur á að kynna sér gögnin. Eftir u.þ.b. tíu daga verði haldinn kynningarfundur og afstaða til breytingarinnar könnuð.
2. Umsókn Íslenska kalkþörungafélagsins ehf. um leyfi til leitar og rannsókna á kalkþörungaseti á hafsbotni við Vestfirði, erindi dags. 31.mars 2011.
Nefndin samþykkir leyfið til leitar og rannsóknar á kalkþörungaseti.
3. Önnur mál.
Nefndin beinir því til sveitastjórnar að beita sér fyrir því að Orkubúið geri úrbætur á hljóðmengun frá díselrafstöð á Skeiði.
Fundi slitið 18:38
Hafdís Sturlaugsdóttir (sign)
Jóhann Lárus Jónsson (sign)
Rósmundur Númason (sign)
Inga Sigurðardóttir (sign)
ATH: Fundargerðin var tekin fyrir á fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2011.