Umhverfis- og skipulagsnefnd - 15. júní 2015
Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar mánudaginn
15. júní 2015, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Hafdís Sturlaugsdóttir, Már Ólafsson, Jóhann Björn Arngrímsson, Valgeir Örn Kristjánsson og Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- Umsókn um framkvæmdaleyfi
Umsókn um framkvæmdaleyfi frá Mílu ehf. og Orkubúi Vestfjarða um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara og háspennustrengja í Strandabyggð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir lagningu ljósleiðara og háspennustrengja innan marka Strandabyggðar enda liggi leyfi landeigenda fyrir ásamt umsögn minjavarðar.
- Umsókn um slóðagerð
Umsókn um lagningu vegslóða frá Austurgilsvirkjun ehf.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin hafi ekki umtalsverð áhrif á umhverfið og sé því ekki framkvæmdaleyfisskyld. Nefndin beinir því til framkvæmdaaðila að svarðlagi verði haldið til haga og notað við uppgræðslu að verki loknu, sjá rit Umhverfisstofnunar um námur-efnistökur og frágang, þess verði gætt að ekki myndist vatnsrásir í vegslóðunum og að verkið verði unnið í samráði við fulltrúa sem sveitarfélagið tilnefnir.
- Beiðni um umsögn
Beiðni um umsögn vegna umsóknar Strandagaldurs um rekstrarleyfi
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfisins.
- Brattagata 4
Umsókn um stækkun lóðar og bílskúrs, grenndarkynning
Engar athugasemdir bárust í grenndarkynningunni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingarleyfi fyrir stækkun á bílgeymslu og stækkun lóðar þannig að hún nái 1 metra norð-vestur fyrir stækkaða bílgeymslu. Nefndin bendir á að æskilegt væri að bæta útlit götuhliðar bílgeymslunnar t.d. með gönguhurð.
- Hafnarbraut 6
Lögð framteikning af lóð að Hafnarbraut 6
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagt lóðarblað fyrir 1362 fermetra lóð.
- Önnur mál
a) Hafnarbraut 2.
Kynnt misræmi sem komið hefur í ljós á lóðarstærð Hafnarbrautar 2.
b) Tjaldsvæði.
Umhverfis– og skipulagsnefnd hvetur lögregluna til að fylgja eftir ákvæðum 3. mgr. 10. greinar reglugerðar um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007 varðandi gistingu á almannafæri.
Jón Gísli Jónsson
Hafdís Sturlaugsdóttir
Már Ólafsson
Jóhann Björn Arngrímsson
Valgeir Örn Kristjánsson
Gísli Gunnlaugsson