Umhverfis- og skipulagsnefnd - 16. október 2014
Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar fimmtudaginn
16. október 2014, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Hafdís Sturlaugsdóttir, Valgeir Örn Kristjánsson, Hlíf Hrólfsdóttir, Jóhann Björn Arngrímsson og Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- 1. Brekkusel.
Erindi frá Sævari Benediktssyni þar sem hann fyrir hönd Bjarnveigar ehf. sækir um leyfi, til að deiliskipuleggja land við Brekkusel fyrir þrjú sumarhús og vinnustofu, samkvæmt meðfylgjandi afstöðumynd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið en bendir á að líklegt sé að gera þurfi minniháttar breytingar á aðalskipulagi samhliða vinnu við deiliskipulagið.
- 2. Hafnarbraut 11
Umsókn frá Aðalbjörgu þorsteinsdóttir þar sem hún sækir um leyfi til að breyta húsinu að Hafnarbraut 11 í íbúðarhús. Húsið er byggt sem atvinnuhús (sögunarhús) en er nú skráð sem geymsla.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið. Byggingarleyfi verður gefið út þegar borist hafa teikningar af húsinu, í samræmi við gildandi byggingarreglugerð.
- 3. Hafnarbraut 15
Erindi frá Aðalbjörgu Þorsteinsdóttir eins eigenda Hafnarbrautar 15 vegna grenitrjáa sem standa á lóðinni Hafnarbraut 17 og ná yfir á lóðina við Hafnarbraut 15.
Erindið lagt fram til kynningar.
- 4. Skíðaskáli
Lagðar fram teikningar af skíðaskála sem Skíðafélag Strandamanna óskar eftir að fá að reisa á lóð sinni Brandsholti í landi Geirmundarstaða.
Erindið samþykkt. Nefndin telur æskilegt að annað salernið verði þannig útbúið að það nýtist hreyfihömluðum.
- 5. Matjurtargarðar
Erindi frá 7 einstaklingum vegna útleigu á matjurtargörðum í Skeljavík.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að starfsmönnum áhaldahússins verði falið að skipuleggja og útbúa matjurtargarða til útleigu.
- 6. Önnur mál
Borgabraut 25.
Erindi frá Birgi H. Péturssyni þar sem hann tilkynnir byggingu 15 m2 geymsluhúss á lóð sinni Borgabraut 25 samkvæmt grein 2.3.5. í byggingarreglugerð.
Jón Gísli Jónsson
Hafdís Sturlaugsdóttir
Valgeir Örn Kristjánsson
Hlíf Hrólfsdóttir
Jóhann Björn Arngrímsson
Gísli Gunnlaugsson