Umhverfis- og skipulagsnefnd - 18. janúar 2016
Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar mánudaginn, 18. janúar 2016, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Hafdís Sturlaugsdóttir, Már Ólafsson, Jóhann Björn Arngrímsson og Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- Deiliskipulag við Jakobínutún
Athugasemdafrestur vegna tillögu að deiliskipulagi íþrótta- og þjónustusvæðis við Jakobínutún (Norðurtún) rann út 5. nóvember s.l. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust við deiliskipulagstillöguna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulag íþrótta- og þjónustusvæðis við Jakobínutún, dagsett í apríl 2015, verði samþykkt.“
- Steinshús
Beiðni frá Sýslumanninum á Vestfjörðum um umsögn um umsókn vegna nýs rekstrarleyfis fyrir Steinshús á Nauteyri. Sótt er um rekstrarleyfi til að reka veitingastað í flokki I, staður án áfengisveitinga, kaffihús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfisins.
- Skipulagsstofnun
Lagt fram bréf frá Skipulagsstofnun þar sem tilkynnt er um ákvörðun um matsskyldu vegna allt að 800 tonna ársframleiðslu á lax- og regnbogasilungsseiðum í seiðaeldisstöð Háafells ehf. á Nauteyri. Niðurstaða Skipulagsstofnunar er að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Niðurstaða Skipulagsstofnunar kynnt.
- Samband íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna vinnu um samræmda lóðaafmörkun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að farið er í þessa vinnu og styður þá nálgun sem fram kemur í bréfi Sambandsins.
- Ísafjarðarbær, Kaldárvirkjun
Erindi frá Ísafjarðarbæ þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008 – 2020 sem nú er til kynningar á vinnslustigi. Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja allt að 600 kW rennslisvirkjun við Kaldá í Önundarfirði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Hafdís Sturlaugsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
- Ísafjarðarbær, Þverárvirkjun
Erindi frá Ísafjarðarbæ þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008 – 2020 sem nú er til kynningar á vinnslustigi. Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja allt að 600 kW rennslisvirkjun við Þverá í Önundarfirði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Hafdís Sturlaugsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
- Frístundabyggð í Skeljavík
Lögð fram frumdrög að deiliskipulagi frístundabyggðar í Skeljavík. Drögin eru unnin af Landmótun ehf.
Farið yfir frumdrögin og ákveðið að láta vinna tillögu með 10 frístundahúsum sem tekur mið af tillögum A og B.
- Önnur mál
Engin.
Jón Gísli Jónsson
Hafdís Sturlaugsdóttir
Már Ólafsson
Jóhann Björn Arngrímsson
Gísli Gunnlaugsson