Umhverfis- og skipulagsnefnd 24. maí 2012
Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Hafdís Sturlaugsdóttir, Stefán Jónsson, Valgeir Örn Kristjánsson og Ingibjörg Emilsdóttir. Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi var í símasambandi og ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
1. Sumarhúsalóðir.
Tekin fyrir umsókn frá Sigurði Helga Guðjónssyni þar sem hann sækir um tvær sumarhúsalóðir í Skeljavík. Lóðirnar eru númer 5 og 6 á meðfylgjandi afstöðumynd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd mælir með því við sveitarstjórn að Sigurði Helga Guðjónssyni verði úthlutað umbeðnum lóðum.
2. Miðtún 9.
Kynntar hugmyndir Leigubæjar ehf. um nýtingu lóðarinnar að Miðtúni 9.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkomnar hugmyndir Leigubæjar ehf. sýni of stórt hús á lóðinni miðað við nýtingu annarra lóða við götuna. Að öðru leyti er frekari útfærslu á byggingarmagni vísað til deiliskipulagsvinnu þar sem breytingin á notkun á nýtingu lóðarinnar er það mikil að grenndarkynning dugar ekki samkvæmt upplýsingum fengnum frá Skipulagsstofnun.
3. Önnur mál
a) Miðtún 15-17.
Erindi frá Hornsteinum fasteignafélagi ehf. leigutaka lóðarinnar að Miðtúni 15-17. Þar er óskað eftir samþykki nefndarinnar til að gera breytingar á skipulagi lóðarinnar þannig að félaginu verði gert kleift að reisa þar þriggja íbúða raðhús í stað parhúss.
Jón Gísli Jónsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
Umhverfis- skipulagsnefnd getur fallist á framkomnar hugmyndir að breyttri nýtingu lóðarinnar og leggur til að breytingin verði send í grenndarkynningu.
b) Hólmadrangur.
Farið yfir lóðarblöð fyrir lóðir Hólmadrangs að Höfðagötu 3a, 3b og Norðurfjöru (landnúmer 142008) sem útbúin voru í framhaldi af erindi fyrirtækisins um stækkun lóðanna og var á dagskrá nefndarinnar 19. maí 2011.
Nefndin staðfestir uppdrátt fyrir ný lóðarmörk við Höfðagötu 3a og 3b en frestar afgreiðslu nýrra lóðarmarka fyrir Norðurfjöru, lóð 142008, meðan leitað er lausnar á lóð fyrir geymsluskúra við Norðurfjöru lóð 142009.
c) Lúpína.
Vegna fyrirspurna sem borist hafa um hvort lóðarhöfum væri heimilt að fjarlægja lúpínu sem vex í landi sveitarfélagsins og sækir að lóðum íbúðarhúsa fagnar Umhverfis- og skipulagsnefnd því að lóðarhafar geri það og hjálpi þannig til við að halda lúpínunni í skefjum.
Jón Gísli Jónsson
Hafdís Sturlaugsdóttir
Stefán Jónsson
Valgeir Örn Kristjánsson
Ingibjörg Emilsdóttir