Umhverfis- og skipulagsnefnd, 9. september 2019
Fundargerð
Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar mánudaginn 9.sept. 2019, kl. 17:00 í Hnyðju.
Fundinn sátu: Aðalbjörg S. Sigurvaldadóttir, Jóhann Björn Arngrímsson, Júlíana Ágústsdóttir, Röfn Friðriksdóttir, Grettir Örn Ásmundarson byggingarfulltrúi og Þórður Már Sigfússon, skipulagsfulltrúi, sem ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
1. Lækjartún 9. Fyrirhuguð bygging á lóð númer 9 í Lækjartúni. Tekið til umræðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja erindið en bendir á að fyrirhuguð grenndarkynning verði stytt niður í tvær vikur. Nefndin fagnar erindinu.
2. Gröf í Bitrufirði. skipting lóðar og lausn úr landbúnaðarnotkun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt og að sótt verði um breytingu til Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið um lausn úr landbúnaðarnotkun.
3. Þórhildur Hinriksdóttir sótt um leyfi fyrir framkvæmdum í landi Kálfaness.
Lagt fram til kynningar. Byggingafulltrúi óskar eftir frekari og ítarlegri gögnum.
4. Strandakúnst sótt um endurnýjun á stöðuleyfi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Nefndin leggur til að stöðuleyfið gildi í eitt ár.
5. Skeljavík ósk um lóð í Skeljavík, til umræðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skoðað verði eignarhald á umræddu svæði áður en hægt er að taka afstöðu til erindisins.
6. Skeljavík athugun á breytingu sumarhúss í íbúðarhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að það komi formlegt erindi um málið.
7. Minnisblað um fegrun Hólmavíkur. Minnisblað sveitarstjóra til US nefndar um fegrun Hólmavíkur.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar erindinu.
8. Örnefnanefnd. Bréf frá nefndinni um „ensk nöfn á íslenskum stöðum“, til umræðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir erindið.
9. N1 staðsetning tækjaskúrs.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur formanni að athuga með stöðu mála á næsta sveitarstjórnarfundi.
10. Undirbúningur vegna aðalskipulagsgerðar til umræðu.
Skipulagsfulltrúi kynnti fyrir nefndinni fyrirhugaðan undirbúning við gerð nýs aðalskipulags.
11 Skilti og umferðarsamþykkt umræða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að þessu máli verði frestað til næsta fundar nefndarinnar.
12. Önnur mál
Íbúi við Hafnarbraut óskar eftir lagfæringu á hættulegum grjótkanti við Vitabraut þar sem grjót veltur niður á íbúðarhús við Hafnarbraut.
Fundi slitið kl. 19:05.