Umhverfis- og skipulagsnefnd fundur 7. mars 2024
Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar fimmtudaginn 7. mars 2024, kl. 17:00. Að Hafnarbraut 25, á Hólmavík.
Fundinn sátu: Matthías Sævar Lýðsson formaður, Þröstur Áskelsson, Ragnheiður Hanna Gunnarsdóttir, Guðrún Elínborg Þorvaldsdóttir, Atli Már Atlason og Grettir Örn Ásmundsson byggingarfulltrúi sem ritar fundargerð.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Umsóknir um stofnanir tveggja lóða að Miðhúsum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsóknirnar.
2. Umsókn um byggingarleyfi að Miðhúsum, þ.e. viðbygging við fjárhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsóknina og fela byggingarfulltrúa að afgreiða málið.
3. Umsókn um byggingarleyfi í Steinadal, þ.e. viðbygging við fjárhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsóknina og fela byggingarfulltrúa að afgreiða málið.
Engin önnur mál.
Fundi slitið kl 17:31