Umhverfis- og skipulagsnefnda - 7. febrúar 2018
Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar miðvikudaginn 7. febrúar 2018, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Hafdís Sturlaugsdóttir, Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, Már Ólafsson, Jóhann Björn Arngrímsson, Júlíana Sverrisdóttir, Einar Indriðason slökkviliðsstjóri og Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- Skeiði 3
Erindi frá Rauðakrossdeild Strandasýslu, undirrituð af Valgeiri Kristjánssyni, þar sem óskað er eftir leyfi til að staðsetja 20 feta gám, nytjagám, á lóð Sorpsamlags Strandasýslu á Skeiði 3. Leyfi lóðarhafa liggur fyrir.
Erindið samþykkt.
- Grund
Umsókn frá Vigni Pálssyni þar sem hann óskar eftir skráningu á nýrri lóð fyrir matshluta 04, Grund lóð 1, út úr jörðinni Grund.
Umhverfis- skipulagsnefnd samþykkir stofnun lóðarinnar.
- Hafnarbraut 17
Erindi frá Röfn Friðriksdóttir þar sem óskað er eftir að gerð verði breyting á aðalskipulagi vegna Hafnarbrautar 17 á Hólmavík svo eignin falli undir verslunar- og þjónustusvæði.
Hafnargata 17 stendur við aðalaðkomuleiðina inn í plássið, við hlið lóðarinnar, við Hafnarbraut 19, er skilgreindur reitur fyrir þjónustustofnanir (Sparisjóðurinn), einnig eru bílastæði fram við lóðina.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur því til við sveitarstjórn að unnin verði óveruleg breyting á aðalskipulagi, samkvæmt 2. mgr. 36 greinar skipulagslaga, á þann veg að nýr reitur, verslunar- og þjónustusvæði, verði skilgreindur fyrir lóðin að Hafnarbraut 17.
- Hafnarbraut 14
Umsókn frá Nesver ehf. um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám við húsnæði Hlakkar ehf.
Erindið samþykkt með því skilyrði að lóðarhafi gefi skriflegt samþykki fyrir staðsetningu gámsins.
- Fiskislóð 1
Erindi frá Viðgerðum Vignis ehf., undirritað af Vigni Rúnari Vignissyni, þar sem óskað er eftir heimild til að fjölga gluggum og hurðum á húsnæðinu að Fiskislóð 1. Ástæða breytinganna er að fyrirhugað er að hefja rekstur á þjónustu fyrir bifreiðar og báta í húsnæðinu. Umsækjandi óskar jafnframt eftir að gerð verði breyting á aðalskipulagi fyrir lóðina samrýmist fyrirhugaður rekstur ekki gildandi aðalskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umbeðnar breytingar á húsnæðinu. Nefndin áréttar að umsækjandi gæti þess að umhverfi hússins verði ávallt snyrtilegt.
Fiskislóð 1 er byggt á árunum 1996 til 1998 sem iðnaðarhúsnæði og hefur lengst af verið notað fyrir fiskvinnslu og aðra starfsemi tengda útgerð. Við gildistöku nýs aðalskipulags árið 2010 breyttist skilgreining svæðisins í verslunar- og þjónustusvæði. Þar sem starfsemi iðnfyrirtækis samræmist ekki núgildandi skipulagi leggur umhverfis- og skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að unnin verði óveruleg breyting á aðalskipulagi, samkvæmt 2. mgr. 36 greinar skipulagslaga, á þann veg að nýr reitur, athafnasvæði, verði skilgreindur fyrir lóðina að Fiskislóð 1.
- Hafnarbraut 22
Lagðar fram teikningar af Hafnarbraut 22 sem borist hafa frá húseiganda og sýna þær breytingar sem standa yfir á húsinu.
Teikningar lagðar fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd áréttar að húseigandi ljúki við teikningar af þeim breytingum sem fram fara á húsinu sem séu í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar. Með endanlegum teikningum þarf að berast formleg umsókn um breytta notkun hússins og skráning byggingar-stjóra fyrir verkið. - Önnur mál
a. Borgabraut 37
Grennarkynningu vegna erindis frá Þorkeli Jóhannssyni, þar sem hann sækir um lóð við Borgabraut 37, lauk þann 5. febrúar s.l. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, fyrir frístundabyggð (smáhúsasvæði) við Borgabraut í Strandabyggð, samkvæmt uppdræti dagsettum í desember 2018, verði samþykkt. Gildandi deiliskipulag sem staðfest var 13. maí 1991 gerir ráð fyrir 9 frístundahúsum (smáhúsum) við Borgabraut og hafa 8 þeirra þegar verið byggð. Breytingin gerir ráð fyrir breyttri staðsetningu 9. lóðarinnar, ný staðsetning lóðarinnar rúmast innan frístundareits F1í gildandi aðalskipulags. Tillaga að breytingu hefur verið kynnt eigendum annarra frístundhúsa á svæði í grenndarkynningu án athugasemda.
b. Snjómokstursreglur
Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur sveitarstjórn til að ljúka við gerð snjómokstursreglna fyrir sveitarfélagið og ítrekar að því tilefni bókun sína varðandi málið á fundi þann 12. desember 2016.
Jafnfram skorar nefndin á sveitarstjórn að fá yfirmenn Vegagerðarinnar til fundar um snjómokstur á þjóðvegum í sveitarfélaginu.
Jón Gísli Jónsson
Hafdís Sturlaugsdóttir
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir
Már Ólafsson
Jóhann Björn Arngrímsson
Júlíana Sverrisdóttir
Einar Indriðason
Gísli Gunnlaugsson