Umhverfis og skipulagsnefnd - 29. ágúst 2018
Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar miðvikudaginn 29. ágúst 2018, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundinn sátu: Eiríkur Valdimarsson formaður, Jón Jónsson, Hafdís Gunnarsdóttir, Ásta Þórisdóttir, Atli Már Atlason, Einar Indriðason slökkviliðsstjóri og Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
1. Óveruleg breyting á aðalskipulagi
Lögð fram að nýju breytt tillaga að óverulegri breytingu á gildandi aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 – 2022, varðandi lóðina við Fiskislóð 1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010-2022, vegna Fiskislóðar 1, með eftirtöldum viðbótum við greinargerð hennar að:
Bílar og bátar verði einungis geymdir innan lóðarinnar.
Bílar og bátar verði ekki geymdir við norð-vesturhlið hússins.
Númerslausir bílar verði ekki geymdir á lóðinni.
Breyting þessi á aðalskipulaginu gildir þar til endurskoðað Aðalskipulag Strandabyggðar tekur gildi.
Jón Jónsson greiðir atkvæði gegn tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar vegna Fiskislóðar 1 og telur að bifreiðaverkstæði væri betur staðsett á skilgreindu athafnasvæði við Skeiði.
2. Kópnesbraut 6
Erindi frá Ingimundi Pálssyni varðandi endurnýjun klæðningar utan á húsinu að Kópnesbraut 6 ásamt endurnýjun glugga.
Erindið samþykkt, byggingarfulltrúa falið að óska eftir upplýsingum um útlit nýrra glugga.
3. Reglur fyrir gámasvæði
Farið yfir tillögu að nýjum reglum fyrir geymslu- og frystigáma í Strandabyggð.
Formanni nefndarinnar falið að vinna áfram að nýjum reglum og leggja fram tímanlega fyrir næsta fund.
4. Upplýsingagjöf og leiðbeiningar á vef Strandabyggðar
Tillaga frá Jóni Jónssyni varðandi aukið vægi upplýsingagjafar og leiðbeininga um umhverfis- og skipulagsmál á vef Strandabyggðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að auka vægi upplýsingagjafar og leiðbeininga um umhverfis- og skipulagsmál á vef sveitarfélagins í samræmi við greinargerð sem fylgdi tillögunni.
5. Breytingar á götuheitum
Tillaga frá Jóni Jónssyni þar sem óskað er eftir að sveitarstjórn staðfesti formlega breytingar á götuheitum á Hólmavík frá árinu 2012.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfesta formlega götuheitin Jakobínutún og Skjaldbökuslóð í opinberum skráningum.
6. Verkefnalisti
Kynntur verkefnalisti byggingarfulltrúa og umhverfis- og skipulagsnefndar.
Rætt um verkefnalistann.
7. Önnur mál
a) Alheimshreinsunardagur.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að Strandabyggð taki þátt í Alheimshreinsunardeginum sem haldinn verður þann 15. september n.k.
b) Vatnslögn
Rætt um vatnslögn sem liggur í landi Kálfaness að lóð Steypustöðvarinnar en nauðsynlegt er að aftengja lögnina við inntakið upp við vatnið.
c) Skipulagsdagur.
Kynnt bréf frá Skipulagsstofnun þar sem vakin er athygli á skipulagsdeginum sem haldinn er þann 20. September n.k.
Eiríkur Valdimarsson
Jón Jónsson
Hafdís Gunnarsdóttir
Ásta Þórisdóttir
Atli Már Atlason
Gísli Gunnlaugsson