Fræðslunefnd - 8. september 2014
Fundur var haldinn hjá fræðslunefnd 8. September n.k. og hófst hann kl. 17.00 á skrifstofu Strandabyggðar í Þróunarsetrinu.
Mætt voru Viðar Guðmundsson, Sigríður G. Jónsdóttir, Vignir Örn Pálsson, Ingibjörg Sigurðardóttir.
Málefni fræðslunefndar:
Málefni leikskóla:
Boðuð kl. 17.00: Alma Benjamínsdóttir leikskólastjóri, Hlíf Hrólfsdóttir fulltrúi starfsmanna, og Jóhanna Rósmundsdóttir fulltrúi foreldra
- Ársskýrsla
Alma kynnti ársskýrsluna og sagði frá ýmsa skemmtilegu sem gert var á árinu.
- Leikskóladagatal
Alma útskýrði dagatalið, áfram vera þemadagar í hverjum mánuði, 5 starfsdagar með lokun og 18 dagar með þátttöku foreldra.
Nefndin samþykkir.
- Starfsmenn
Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir leikskólastjóri
Hlíf Hrólfsdóttir sérkennslustjóri
Steinunn Eysteinsdóttir matráður og ræstitæknir
Þorbjörg Matthíasdóttir veikinda og undirbúningsafleysing
Jón Arnar Ólafsson afleysing vegna tímabundinna veiknida
Aðalbjörg Sigurvaldadóttir deildarstjóri
Berglind Maríusdóttir leiðbeinandi
Heiða Jónsdóttir leiðbeinandi
Brynja Guðlaugsdóttir deildarstjóri
Unnur Eva Ólafsdóttir leiðbeinandi
Guðrún Guðjónsdóttir leiðbeinandi
- Nemendur
Nemendalisti kynntur.
- Önnur mál
- Leikskólinn er orðinn þátttakandi í „Skóli á grænni grein“. Nefndin leggur til að keypt verði fánastöng svo hægt sé að flagga fánanum.
- Vinna við skólastefnuna er framundan.
Málefni grunnskóla:
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri, Hrafnhildur Þorsteinsdóttir fulltrúi kennara og foreldra, Barbara Ósk Guðbjartsdóttir fulltrúi tónskóla.
Nefndin býður nýjan skólastjóra hjartanlega velkomin til starfa.
- Skóladagatal - kynning og umræður
Hrafnhildur kynnti dagatalið. Starfsdagar verða 12, jólafrí 22.des – 6.janúar, páskafrí 30.mars -7.apríl 2015, skólaslit 4.júní 2015. Nefndin samþykkir skóladagatalið.
- Stundaskrár - kynning og umræður.
Skólinn hefst kl 08:30. 1.-4.bekkur er búinn kl. 14:oo og 5.-10.bekkur er búinn kl.14:30. Allir fara á sama tíma í mat 12:10.
- Nemendafjöldi og hópaskipting - kynning og umræður
Nemendur eru 57, 32 drengir og 25 stúlkur. Skiptast í fjóra hópa.
- Starfsmannamál - kynning og umræður
Starfsmenn tónskóla: Barbara Ósk Guðbjartsdóttir og Gunnur Arndís Halldórsdóttir
Skólaliðar:Ingibjörg Fossdal og Sigrún María Kolbeinsdóttir í
Stuðningsfulltrúar: Árný Huld Haraldsdóttir, Dagrún Magnúsdóttir , Íris Björg Guðbjartsdóttir , Jóhanna Guðbjörg Rósmundsdóttir , Kristbjörg Helga Ingvarsdóttir .
Bókavörður: Svanur Kristjánsson
Skólabílstjórar: Hlynur Þór Ragnarsson og Þórður Halldórsson.
Kennarar og leiðbeinendur: Anna Birna Gunnlaugsdóttir, Ásta Þórisdóttir, Esther Ösp Valdimarsdóttir , Hrafnhildur Þorsteinsdóttir , Kolbrún Þorsteinsdóttir, Lára Jónsdóttir , Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir , Vala Friðríksdóttir.
- Tímamagn skóla – umsókn
1.-10.bekkur alls 132 stundir
Skiptistundir alls 21 stund
Sérkennsla og fleira alls 35 stundir
Samtals kennsla 188 stundir.
Nefndin samþykkir tímamagn.
- Starfsmannanámskeið – skólaþróun
Sameiginlegt námskeið grunn- og leikskólanna á Hólmavík og Reykhólum kennt eftir námsskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Allir stuðningsfulltrúar, skólaliðar, skólabílstjóri, tónlistarkennarar sitja námskeiðið. Sérfræðingar á svæðinu annast kennsluna. Farið er m.a. í samskipti sjálfstyrkingu, aga, reiðistjórnun, jákvæða styrkingu, fordóma, þroskaferli og fl. Nefndin lýsir yfir mikilli ánægju með námskeiðið og samstarf skólanna.
- Skólastefna - vinnan framundan.
Vinna við skólastefnu hefst í september. Fundur stjórnanda grunn-og leikskóla með sveitastjóra og fræðslustjóra 9.september. Í framhaldi af þeim fundi verður fjölmennari fundur 16.september þar sem skipulag starfsins verður ákveðið.
- Skólahúsnæði - fjárhagsáætlun og framkvæmdir
Skólastjóri mun óska mats byggingarfulltrúa/tæknifræðings á nauðsynlegum framkvæmdum og fara fram á að byggingarfulltrúi vinni kostnaðaráætlun verkþátta og forgangsraði verkum í viðhaldi húsnæði Grunnskólans á Hólmavík.
- Skólabílar og skipulag - ýmsar hugmyndir
Skólabíll suður Strandir að og frá grunnskóla eru 13 og til viðbótar eru 3 leikskólanemendur.
Farþegar í skólabíl vestur eru 3.
- Skólaumhverfið - ýmsar hugmyndir
Ýmsar hugmyndir eru í gangi um leið og skólafólk gleðst yfir uppsetningu aparólunnar og ýmsum smá lagfæringum í umhverfi skólans.
Útikennsla þarfnast ákveðins svæðis í sátt og samlyndi við sveitafélag og íbúa og er verið að vinna í þeim málum.
Matjurtagarður við skólann. Þessi hugmynd hefur skotið upp kollinum áður. Nemendur hafa ræktað á Ólafsdal en nokkur kostnaður fylgt.
- Skólaskjólið, haust 2014
Tillaga frá skólastjóra og tómstundafulltrúa um breytingu á starfsemi Skólaskjóls. Tillaga um að færa Skólaskjólið frá fræðslusviði til tómstundasviðs. Með því að færa umsjón þess milli sviða skapast svigrúm til að nýta þá faglegu þekkingu sem starfsfólk sveitarfélagsins býr yfir sem allra best og bjóða börnunum og foreldrum þeirra upp á framúrskarandi frístundastarf hins vegar. Nefndin samþykkir tillöguna.
- Önnur mál.
Innkaup á ritföngum:Nefndin leggur til að frá og með næsta skólaári muni skólinn sjá um innkaup á ritföngum og stílabókum fyrir alla nemendur.Til hagræðis fyrir nemendur og foreldra.
Skólasund:Nefndin fjallaði um sundkennslu sem er ekki í boði núna í september.
Fundi slitið kl.19:44