Sveitarstjórn Strandabyggðar 1190 - 22. nóvember 2011
Þriðjudaginn 22. nóvember 2011 var fundur nr. 1190 haldinn í sveitarstjórn Strandabyggðar á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst fundurinn kl. 16:00. Oddviti sveitarstjórnar, Jón Gísli Jónsson setti fundinn sem einnig sátu Jón Jónsson varaoddviti, Bryndís Sveinsdóttir, Katla Kjartansdóttir og Ingibjörg Benediktsdóttir. Ingibjörg Valgeirsdóttir sveitarstjóri ritaði fundargerð.
Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
1. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Strandabyggðar 2012, fyrri umræða
2. Tillaga um breytingu á samþykktum um stjórn og fundasköp Strandabyggðar, skipun nefnda á nýjum sviðum
3. Áfallateymi Strandabyggðar, erindi frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur
4. Fulltrúi í vatnasvæðanefnd, erindi frá Umhverfisstofnun, dags. 19. október 2011
5. Fundur með þingmönnum Norð-Vesturkjördæmis haldinn á Hólmavík 27. október 2011, minnisblað frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur
6. Heimsókn hr. Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í Strandabyggð og opinn fundur um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál, minnisblað frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur
7. Endurskinsvesti fyrir grunn- og leikskólanemendur í Strandabyggð, erindi frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur, dags. 18. nóvember 2011
8. Beiðni um hækkun framlaga til Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða á árinu 2012, erindi dags. 3. nóvember 2011
9. Beiðni um fjárstyrk, erindi frá Björgunarsveitinni Dagrenningu dags. 7. nóvember 2011
10. Stuðningur við Snorraverkefnið 2012, erindi dags. 7. nóvember 2011
11. Fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2012, erindi móttekið 11. nóvember 2011
12. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarða, 4. nóvember 2011
13. Fundargerð samráðshóps ríkis og sveitarfélaga, dags. 5. október 2011
14. Fundargerð samráðsfunda stjórnar sambandsins og formanna og framkvæmdastjóra landshlutasamtaka sveitarfélaga, dags. 14. október 2011
15. Fundargerð 790. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 28. október 2011
16. Boðun aukaþings Fjórðungssambands Vestfirðinga um stoðkerfi atvinnu og byggða, erindi dags. 11. nóvember 2011
17. Fundargerð Byggingar-, umferðar- og skipulagsnefndar, dags. 17. nóvember 2011
18. Fundargerð Atvinnumála- og hafnarnefndar, dags. 21. nóvember 2011
Þá var gengið til dagskrár:
1. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Strandabyggðar 2012, fyrri umræða
Vísað til síðari umræðu.
2. Tillaga um breytingu á samþykktum um stjórn og fundasköp Strandabyggðar, skipun nefnda á nýjum sviðum.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir mánaðarlega fundartíma sveitarstjórnar, annan þriðjudag í mánuði og hefjast fundirnir kl. 16:00. Sveitarstjórn samþykkir einnig breytingar á nefndum. Nefndir í sveitarfélaginu Strandabyggð 2011 - 2014 verða skipaðar sem hér segir:
Atvinnu-, dreifbýlis og hafnarnefnd
Aðalmenn
Jón Jónsson formaður
Rúna Stína Ásgrímsdóttir
Jón Vilhjálmur Sigurðsson
Árný Huld Haraldsdóttir
Matthías Lýðsson
Varamenn
Andrea Marta Vigfúsdóttir
Rósmundur Númason
Ragnheiður Birna Guðmundsdóttir
Sverrir Guðbrandsson
Kristín S. Einarsdóttir
Fræðslunefnd
Aðalmenn
Ingibjörg Benediktsdóttir formaður
Steinunn Þorsteinsdóttir
Ragnar Bragason
Kristinn Schram
Ingibjörg Sigurðardóttir
Varamenn
Guðrún Guðfinnsdóttir
Sigurður Vilhjálmsson
Jóhanna Guðbrandsdóttir
Viktoría Rán Ólafsdóttir
Sigurður Marinó Þorvaldsson
Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd
Aðalmenn
Katla Kjartansdóttir formaður
Kolbeinn Skagfjörð
Salbjörg Engilbertsdóttir
Steinar Ingi Gunnarsson
Kristjana Eysteinsdóttir
Varamenn
Barbara Guðbjartsdóttir
Þorsteinn Newton
Aðalbjörg Guðbrandsdóttir
Jón Eðvald Alfreðsson
Snorri Jónsson
Umhverfis- og skipulagsnefnd
Aðalmenn
Jón Gísli Jónsson formaður
Hafdís Sturlaugsdóttir
Valgeir Örn Kristjánsson
Ingibjörg Emilsdóttir
Stefán Steinar Jónsson
Varamenn
Dagrún Magnúsdóttir
Ingimundur Jóhannsson
Elfa Björk Bragadóttir
Lýður Jónsson
Eysteinn Gunnarsson
Velferðarnefnd
Aðalmenn
Bryndís Sveinsdóttir
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir
Varamenn
Arnar Jónsson
Jóhann Lárus Jónsson
Nefndarfólk í Strandabyggð sem nú lætur af störfum fær kærar þakkir fyrir
óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélagsins Strandabyggðar.
3. Áfallateymi Strandabyggðar, erindi frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að skipa áfallateymi í Strandabyggð og felur sveitarstjóra að ganga frá skipun fulltrúa í teymið.
4. Fulltrúi í vatnasvæðanefnd, erindi frá Umhverfisstofnun, dags. 19. október 2011.
Sveitarstjórn leggur til að sveitarfélagið Strandabyggð tilnefni fulltrúa í samráði við önnur sveitarfélög.
5. Fundur með þingmönnum Norð-Vesturkjördæmis haldinn á Hólmavík 27. október 2011, minnisblað frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur
Sveitarstjórn Strandabyggðar fagnar því að fundur með þingmönnum Norð-Vesturkjördæmis hafi verið haldinn á Hólmavík og þakkar þingmönnum og sveitarstjórnarfólki á Vestfjörðum fyrir hreinskiptar umræður og góðar undirtektir við brýn málefni.
6. Heimsókn hr. Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í Strandabyggð og opinn fundur um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál, minnisblað frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur
Sveitarstjórn Strandabyggðar þakkar ráðherra kærlega fyrir komuna og þátttöku í fundi með íbúum um brýn hagsmunamál á svæðinu.
7. Endurskinsvesti fyrir grunn- og leikskólanemendur í Strandabyggð, erindi frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur, dags. 18. nóvember 2011
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að sveitarfélagið standi fyrir því að keypt verði endurskinsvesti fyrir öll börn á grunnskólaaldri í Strandabyggð. Janframt verði tryggt að endurskinsvesti séu til fyrir öll börn í leikskólanum Lækjarbrekku til notkunar í útivist á vegum skólans.
8. Beiðni um hækkun framlaga til Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða á árinu 2012, erindi dags. 3. nóvember 2011
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að fresta því að afgreiða erindið þangað til ákvörðun hefur verið tekin um framtíð stoðkerfis á Vestfjörðum.
9. Beiðni um fjárstyrk, erindi frá Björgunarsveitinni Dagrenningu dags. 7. nóvember 2011
Sveitarstjórn Strandabyggðar vísar erindi Björgunarsveitarinnar Dagrenningar til fjárhagsáætlunargerðar.
10. Stuðningur við Snorraverkefnið 2012, erindi dags. 7. nóvember 2011
Sveitarstjórn Strandabyggðar þakkar fyrir erindið en sér sér ekki fært að veita verkefninu stuðning að þessu sinni.
11. Fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2012, erindi móttekið 11. nóvember 2011
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir tillögu oddvita að veita styrk að upphæð kr. 30.000.
12. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarða, dag. 4. nóvember 2011
Sveitarstjórn Strandabyggðar óskar eftir skýringum á hækkuðum ferðakostnaði heilbrigðisnefndar milli áranna 2010 - 2011. Sveitarstjórn samþykkir nýja gjaldskrá og framlag Strandabyggðar árið 2011.
13. Fundargerð samráðshóps ríkis og sveitarfélaga, dags. 5. október 2011
Lagt fram til kynningar.
14. Fundargerð samráðsfunda stjórnar sambandsins og formanna og framkvæmdastjóra landshlutasamtaka sveitarfélaga, dags. 14. október 2011
Lagt fram til kynningar.
15. Fundargerð 790. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 28. október 2011
Lagt fram til kynningar.
16. Boðun aukaþings Fjórðungssambands Vestfirðinga um stoðkerfi atvinnu og byggða, erindi dags. 11. nóvember 2011
Lagt fram til kynningar. Umræður fóru fram í sveitarstjórn um greinargerð starfshópsins. Sveitarstjórn hefði kosið að sveitarstjórnum og hagsmunaaðilum hefði gefist meiri tími til að fjalla um málið.
17. Fundargerð Byggingar-, umferðar- og skipulagsnefndar, dags. 17. nóvember 2011
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða lið 1 um framkvæmdaleyfi fyrir gerð fiskivegar í Lágadalsá.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða lið 2 um sumarhúsabyggð í Lágadal.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða lið 3 varðandi aðalskipulag Árneshrepps.
Liður 4: Jón Gísli Jónsson og Jón Jónsson víkja af fundi. Byndísi Sveinsdóttur er falin fundarstjórn.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að fela sveitarstjóra að fara í viðræður við umsækjendur um skilmála vegna skráningar húsanna, lóðarleigusamning og tímamörk framkvæmda.
Jón Gísli Jónsson og Jón Jónsson koma aftur inn á fund, Jón Gísli Jónsson tekur aftur við fundarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir lið 5a varðandi lóðarmál Kópnesbrautar 4 og 4b.
Sveitarstjórn samþykkir fundargerðina að öðru leyti.
18. Fundargerð Atvinnumála- og hafnarnefndar, dags. 21. nóvember 2011
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða.
Fundargerð lesin og fundi slitið kl. 20:16.