Sveitarstjórn Strandabyggðar 1203 - 11. desember 2012
Fundur nr. 1203 var haldinn í sveitarstjórn Strandabyggðar þriðjudaginn 11. desember 2012 í Hnyðju, Höfðagötu 3. Fundurinn hófst kl. 16:00. Jón Gísli Jónsson oddviti sveitarstjórnar, bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Einnig sátu fundinn Jón Jónsson varaoddviti, Ásta Þórisdóttir, Bryndís Sveinsdóttir og Viðar Guðmundsson. Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri ritaði fundargerð.
Gerð er sú athugasemd að liðir 12 og 13 í dagskrá verði
felldir út.
Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
1. Fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2013, síðari umræða.
2. Gjaldskrárbreytingar
3. Sorpsamlag Strandasýslu, rekstraráætlun 2013
4. Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, fjárhagsáætlun 2012
5. Landgræðsla ríkisins, beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins Bændur græða landið, dags 19/11/2012
6. Páll Arnór Pálsson, f.h. Varplands, óskað eftir afstöðu sveitarstjórnar, dags 4/12/2012
7. Frá Eysteini Gunnarssyni og félögum varðandi byggðakvótamál, dags 4/12/2012
8. Fjórðungssamand Vestfjarða, beiðni um skipan fulltrúa í samráðshóp vegna sóknaráætlunar Vestfjarða, dags 5/12/2012
9. Fundargerð Velferðarnefndar
10. Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar
11. Fundargerð Atvinnu- dreifbýlis- og hafnarnefndar
12. Fundargerð Fræðslunefndar
13. Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar
Þá var gengið til dagskrár.
1.
Fjárhagsáætlun Strandabyggðar
fyrir árið 2013, síðari umræða.
Salbjörg Engilbertsdóttir var kölluð fyrir fundinn þar sem hún fór yfir og
útskýrði fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2012.
Rekstrarniðurstaða A-hlutasjóðs sveitarfélagsins er áætlun kr. 6.852.000
Samanlögð rekstrarniðurstaða úr A- og B- hluta sjóðum sveitarfélagsins eru kr.
11.494.000
Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Strandabyggðar 2013 er samþykkt samhljóða.
2.
Gjaldskrárbreytingar
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að jafnaði 6% hækkun á öllum gjaldskrám sveitarfélagsins
sem ekki eru tengdar vísitölu, til að mæta verðlagsþróun.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir 20% hækkun á sorphirðugjaldi.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir óbreytta fasteignaálagningu. A-gjald í
Strandabyggð verður 0,5% af fasteignamati, B-gjald verður 1,32% af
fasteignamati og C-gjald verður 1,51% af fasteignamati. Holræsagjald verður
0,25% af fasteignamati og vatnsskattur 0,3% af fasteignamati. Lóðarleiga verður
2,5% af fasteignamati lóðar.
Breytingar á gjaldsrkám taka gildi 1. janúar 2013.
3.
Sorpsamlag Strandasýslu,
rekstraráætlun 2013
Kostnaðarhlutdeild sveitarfélagsins Strandabyggðar er áætluð rúmar 18
milljónir. Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykktir fjárhagsáætlun Sorpsamlags
Strandasýslu fyrir árið 2013.
4.
Byggðasafn Húnvetninga og
Strandamanna, fjárhagsáætlun 2012
Afgreiðslu þessarar áætlunar er frestað þar til niðurstaða liggur fyrir af
vinnu samstarfshóps um kostnaðarhlutdeild eigenda og gerð nýrra samþykkta fyrir
safnið.
5.
Landgræðsla ríkisins, beiðni um
styrk vegna samstarfsverkefnisins Bændur græða landið, dags 19/11/2012
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir styrkveitinguna. Sveitarstjórn óskar
jafnframt eftir því að fá kynningarfund frá aðstandendum verkefnisins.
6.
Páll Arnór Pálsson, f.h.
Varplands, óskað eftir afstöðu sveitarstjórnar, dags 4/12/201
Sveitarstjóra er falið að senda Páli Arnóri Pálssonar upplýsingar um fyrri
afgreiðslu sveitarstjórnar.
7.
Frá Eysteini Gunnarssyni og
félögum varðandi byggðakvótamál, dags 4/12/2012
Sveitarstjórn þakkar Eysteini fyrir erindið. Sveitarstjóra er falið að svara
erindinu og óska eftir frekari upplýsingum um hvernig sveitarsjtórn geti komið
að málinu.
8.
Fjórðungssamand Vestfjarða, beiðni
um skipan fulltrúa í samráðshóp vegna sóknaráætlunar Vestfjarða, dags 5/12/2012
Jón Jónsson og Andrea K. Jónsdóttir eru skipuð aðalfulltrúar í samráðshóp vegna
sóknaráætlunar Vestfjarða. Til vara eru Viðar Guðmundsson og Ásta Þórisdóttir.
9.
Fundargerð Velferðarnefndar
Liður 2, reglur Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps um fjárhagsaðstoð er
samþykkt.
Varðandi lið 3, samþykkt er að hefja undirbúningsvinnu vegna Iðju –
Samveruhúss.
Fundargerð samþykkt að öðru leiti.
10.
Fundargerð Umhverfis- og
skipulagsnefndar
Liður 2, varðandi Háafell ehf. Nauteyri samþykkir sveitarstjórn niðurstöðu
nefndarinnar.
Liður 3, varðandi skipulagslýsingu vegna Kópnesbrautar samþykkir sveitarstjórn
niðurstöðu nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt að öðru leiti.
11.
Fundargerð Atvinnu- dreifbýlis- og
hafnarnefndar
Liður 2, varðandi erindi frá Hlyn Gunnarssyni varðandi gjaldskrá
Hólmavíkurhafnar. Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins og samþykkir með
fjórum atkvæðum gegn einu að fela hafnarverði að koma með tillögur að
útfærslum.
Fundargerð samþykkt að öðru leiti.
Fundargerð yfirfarin og undirrituð
og fundi slitið kl. 18:30.
Jón Gísli Jónsson |
Jón Jónsson
|
Bryndís Sveinsdóttir
Viðar Guðmundsson |
Ásta Þórisdóttir
|