Sveitarstjórn Strandabyggðar 1213 - 08. október 2013
Fundur nr. 1213 var haldinn í sveitarstjórn Strandabyggðar þriðjudaginn 08. október 2013 í Hnyðju, Höfðagötu 3. Fundurinn hófst kl. 16:00. Jón Gísli Jónsson oddviti sveitarstjórnar, bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Einnig sátu fundinn Jón Jónsson, Ásta Þórisdóttir, Viðar Guðmundsson og Bryndís Sveinsdóttir. Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri ritaði fundargerð.
Oddviti leitar afbrigða við dagskrá fundar. Áður auglýstur liður númer 6 fellur niður en þess í stað gerir oddviti að tillögu sinni að liður 6 verði erindi frá Húnaþingi vestra, ósk um innlausn á hlutafé í Sorpsamlagi Strandasýslu.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Erindi frá Ingimundi Magnússyni vegna ljósastaura, dagsett 02/10/2013
- Erindi frá Leikskólastjóra vegna 25 ára afmæli Leikskólans Lækjarbrekku, dags 02/10/2013
- Fundargerð NAVE frá 05/09/2013 lögð fram til kynningar
- Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar
- Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar
- Fundargerð Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefndar
Þá var gengið til dagskrár.
- Erindi frá Ingimundi Magnússyni vegna ljósastaura, dagsett 02/10/2013
Sveitarstjórn þakkar Ingimundi Magnússyni erindið. Sveitarfélagið Strandabyggð tekur ekki þátt í flutningi þegar niðursettra staura á lögbýlum i sveitarfélaginu. - Erindi frá Leikskólastjóra vegna 25 ára afmæli Leikskólans Lækjarbrekku, dags 02/10/2013
Sveitarstjórn þakkar erindið og afmælisboðið. Sveitarstjórn hyggst koma með pakka með sér og þyggja afmælismorgunverð. - Fundargerð NAVE frá 05/09/2013 lögð fram til kynningar
Fundargerð lögð fram til kynningar. - Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar
Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar samþykkt í heild sinni. - Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar
Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt í heild sinni. - Erindi frá Húnaþingi vestra, ósk um innlausn á hlutafé Húnaþings vestra í Sorpsamlagi Strandasýslu, dags 13/09/2013
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að leysa til sín hlutafé Húnaþings vestra í Sorpsamlagi Strandasýslu í samræmi við eignarhlut Strandabyggðar í samlaginu að því gefnu að Kaldrananeshreppur og Árneshreppur geri slíkt hið sama.
Fundargerð yfirfarin og undirrituð og fundi slitið kl. 17:38
Jón Gísli Jónsson Jón Jónsson
Ásta Þórisdóttir Bryndís Sveinsdóttir
Viðar Guðmundsson
08. október 2013
Andrea Kristín Jónsdóttir
sveitarstjóri Strandabyggðar