Sveitarstjórn Strandabyggðar 1256 - 10.janúar 2017
Fundur nr. 1256 í sveitarstjórn Strandabyggðar var haldinn þriðjudaginn 10. janúar 2017 í Hnyðju, Höfðagötu 3. Fundurinn hófst kl. 16:00. Jón Gísli Jónsson (J) bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Auk Jóns Gísla sátu fundinn Ásta Þórisdóttir (J) , Ingibjörg Emilsdóttir(J), Ingibjörg Benediktsdóttir (E) og Haraldur V. A. Jónsson (F). Ingibjörg Emilsdóttir varaoddviti ritaði fundargerð.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Ungmennaráð Strandabyggðar fundar með sveitarstjórn
- Fundargerð Ungmennaráðs Strandabyggðar frá 12/12/2016
- Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar frá 12/12/2016
- Fundargerð símafundar sveitarstjóra DRS og Alta frá 8/12/2016
- Fundargerð 390. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands frá 7/12/2016
Þá var gengið til dagskrár.
- Ungmennaráð Strandabyggðar fundar með sveitarstjórn
Vegna veikinda er fundi með ungmennaráði frestað.
- Fundargerð Ungmennaráðs Strandabyggðar frá 12/12/2016
Fundargerð samþykkt samhljóða.
- Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar frá 12/12/2016
Fundargerð samþykkt samhljóða.
- Fundargerð símafundar sveitarstjóra DRS og Alta frá 8/12/2016
Fundargerð samþykkt samhljóða.
- Fundargerð 390. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands frá 7/12/2016
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð yfirfarin og undirrituð og fundi slitið kl. 16:28
Ásta Þórisdóttir
Haraldur V.A. Jónsson
Ingibjörg Benediktsdóttir
Ingibjörg Emilsdóttir
Jón Gísli Jónsson