Sveitarstjórn Strandabyggðar 1261 - 23. maí 2017
Fundur nr. 1261 í sveitarstjórn Strandabyggðar var haldinn þriðjudaginn 23. maí 2017 í Hnyðju, Höfðagötu 3. Fundurinn hófst kl. 16:00. Jón Gísli Jónsson (J) bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Auk Jóns Gísla sátu fundinn Ásta Þórisdóttir (J) , Ingibjörg Emilsdóttir(J), Ingibjörg Benediktsdóttir (E) og Haraldur V. A. Jónsson (F). Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri ritaði fundargerð.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Ársreikningur Strandabyggðar fyrir árið 2016 lagður fram til síðari umræðu
- Erindi frá slökkviliðsstjórum í Strandabyggð; Tillaga að skipun nýrra starfsmanna í liðið, dagsett 17/5/2017
- Drög að gjaldskrá vegna tenginga ljósleiðara í Strandabyggð, dagsett 18/5/2017
- Fundargerðir stjórnarfunda Fjórðungssambands Vestfirðinga frá 3/5/2017 og 15/5/2017
Þá var gengið til dagskrár.
- Ársreikningur Strandabyggðar fyrir árið 2016 lagður fram til síðari umræðu
Rekstraraniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 5,8 millj. kr. en í A hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 10.6 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2016 nam 338,6 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé í A hluta nam 415,0 millj. kr.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir samhljóða ársreikning Strandabyggðar 2016. - Erindi frá slökkviliðsstjórum í Strandabyggð; Tillaga að skipun nýrra starfsmanna í liðið, dagsett 17/5/2017
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir framkomna tillögu um skipan nýrra starfsmanna í slökkvilið Strandabyggðar. - Drög að gjaldskrá vegna tenginga ljósleiðara í Strandabyggð, dagsett 18/5/2017
Vegna lagningar ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins á næstu mánuðum, samþykkir sveitarstjórn Strandabyggðar að tengigjald hvers styrkhæfs staðar verði 310,000- kr með vsk fyrir hverja tengingu.
Vegna lagningar ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins á næstu mánuðum, samþykkir sveitarstjórn Strandabyggðar að bjóða eigendum sumarhúsa og annarra fasteigna á sem ekki falla undir skilgreiningar fjarskiptasjóðs um styrkhæfa staði sunnan Hólmavíkur, að tengjast ljósleiðarakerfinu. Tengigjald verði 360,000 kr. á hverja tengingu. Fari raunkostnaður við lagningu og tengingu ljósleiðara yfir fyrrgreinda upphæð greiðir fasteignaeigandi mismuninn (verður reiknað sérstaklega fyrir hverja tengingu).
Samþykkt samhljóða.
- Fundargerðir stjórnarfunda Fjórðungssambands Vestfirðinga frá 3/5/2017 og 15/5/2017
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
Fundargerð yfirfarin og undirrituð og fundi slitið kl. 17:12
Ásta Þórisdóttir
Haraldur V.A. Jónsson
Ingibjörg Benediktsdóttir
Ingibjörg Emilsdóttir
Jón Gísli Jónsson