Sveitarstjórn Strandabyggðar 1274 - 15. maí 2018
Fundur nr. 1274 í sveitarstjórn Strandabyggðar var haldinn þriðjudaginn 15. maí 2018 á Höfðagötu 3. Fundurinn hófst kl. 16:00. Jón Gísli Jónsson (J) bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Auk Jóns Gísla sátu fundinn Ásta Þórisdóttir (J), Haraldur V. A. Jónsson (F), Guðrún E. Þorvaldsdóttir (J) og Vignir Örn Pálsson (E). Ingibjörg Emilsdóttir (J) og Ingibjörg Benediktsdóttir (E) höfðu áður boðað forföll. Andrea K. Jónsdóttir sveitarstjóri ritaði fundargerð.
Í upphafi fundar boðar oddviti afbrigði við dagskrá og að undir lið 4 verði fjallað um undirbúning sveitarstjórnarkosninga 2018 og að undir lið 5 verði fjallað um sameiginlega brunavarnaáætlun Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar. Var það samþykkt samhljóða.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Ársreikningur Strandabyggðar fyrir árið 2017 lagður fram til fyrri umræðu
- Erindi frá forstöðumanni íþróttamiðstöðvar vegna kaupa á salernishúsi, dagsett 30/4/2018. Afgreiðslu erindis frestað á fundi þann 8. maí og óskað eftir frekari gögnum frá forstöðumanni íþróttamiðstöðvar.
- Erindi frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar Strandabyggðar, varðar yfirlagnir á götum, dagsett 2/5/2018. Afgreiðslu erindis frestað á fundi þann 8. maí og óskað eftir frekari gögnum frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar.
- Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga 2018
- Erindi frá sveitarstjóra Dalabyggðar varðandi sameiginlega brunavarnaáætlun Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar, dagsett 7/5/2018
Þá var gengið til dagskrár.
- Ársreikningur Strandabyggðar fyrir árið 2017 lagður fram til fyrri umræðu
Ársreikningi fyrir árið 2017 er vísað til síðari umræðu. - Erindi frá forstöðumanni íþróttamiðstöðvar vegna kaupa á salernishúsi, dagsett 30/4/2018. Afgreiðslu erindis frestað á fundi þann 8. maí og óskað eftir frekari gögnum frá forstöðumanni íþróttamiðstöðvar.
Sveitarstjórn frestar málinu til næsta fundar þann 22. maí 2018. - Erindi frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar Strandabyggðar, varðar yfirlagnir á götum, dagsett 2/5/2018. Afgreiðslu erindis frestað á fundi þann 8. maí og óskað eftir frekari gögnum frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar.
Sveitarstjórn samþykkir að 2,5 milljónir af 7,1 milljón sem ætluð var í gangstéttir fari þess í stað í yfirlögn á Vitabraut. - Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga 2018
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi kjörskrárstofn sem kjörskrá og felur sveitarstjóra að undirrita kjörskrá í samræmi við 7. gr. laga nr. 5/1998. - Erindi frá sveitarstjóra Dalabyggðar varðandi sameiginlega brunavarnaáætlun Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar, dagsett 7/5/2018
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir framkomin drög að sameiginlegri brunavarnaráætlun sveitarfélaganna þriggja og leggur til að þeirri vinnu verði haldið áfram.
Fundargerð yfirfarin og undirrituð og fundi slitið kl. 17:47
Ásta Þórisdóttir
Guðrún E. Þorvaldsdóttir
Haraldur V. A. Jónsson
Jón Gísli Jónsson
Vignir Örn Pálsson