Sveitarstjórnarfundur 1321 í Strandabyggð - 10. ágúst 2021
Sveitarstjórnarfundur nr. 1321 í sveitarstjórn Strandabyggðar var haldinn þriðjudaginn 10. ágúst 2021 í Hnyðju, Höfðagötu 3, og hófst kl. 16:00. Eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sátu fundinn: Jón Gísli Jónsson, Ásta Þórisdóttir, Guðfinna Lára Hávarðardóttir, Pétur Matthíasson og Jón Jónsson sem jafnframt ritaði fundargerð.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Fjallskilaseðill 2021.
- Fyrirspurn frá Þorgeiri Pálssyni varðandi þjónustukaup, útboð og styrki, dags. 12. júlí 2021
- Aðalfundur Sorpsamlags Strandasýslu ehf frá 6. ágúst 2021
- Fundargerð Fræðslunefndar Strandabyggðar frá 5. ágúst 2021
- Samningur við Vestfjarðastofu um stuðning við Þróunarsetrið á Hólmavík á árinu 2021, í tengslum við styrktarflokkinn: Nýsköpunar- og samfélagsmiðstöðvar
Oddviti bauð fundarmenn hjartanlega velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Ekki voru gerðar athugasemdir.
Þá var gengið til dagskrár:
- Fjallskilaseðill 2021
Lögð voru fram drög að fjallskilaseðli fyrir árið 2021. Samþykkt að birta þær dagsetningar á leitum og réttum sem þar koma fram, á vef sveitarfélagsins hið fyrsta. Pétri Matthíassyni formanni Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefndar er falið að ganga frá seðlinum þegar upplýsingar um fjáreign sem óskað hefur verið eftir berast og halda fund um fjallskilaseðilinn hjá Atvinnu-, dreifbýlis og hafnarnefnd sem síðan er falið að senda hann út.
- Fyrirspurn frá Þorgeiri Pálssyni varðandi þjónustukaup, útboð og styrki, dags. 12. júlí 2021
Tekið var fyrir erindi frá Þorgeiri Pálssyni dags. 12. júlí 2021. Þar leggur hann fram eftirfarandi fyrirspurnir:
„Ég óska hér með formlega eftir því að sveitarstjórn Strandabyggðar fjalli um þetta erindi mitt á sveitarstjórnarfundi í ágúst og svari eftirfarandi spurningum:
- Hver er heildarupphæð þeirrar þjónustu sem Strandabyggð hefur keypt af Trésmiðjunni Höfða kt 501105-1200 sl. 20 ár?
- Í hve mörgum tilvikum var um útboð verkefna að ræða?
- Var viðgerð á Grunnskóla Hólmavíkur boðin út?
- Var viðbygging leikskólans Lækjarbrekku á Hólmavík boðin út?
- Hver er heildarupphæð styrkveitinga (beinna og óbeinna) sveitarfélagsins Strandabyggðar til Galdrasýningar á Ströndum (Galdrasafnsins) kt. 540300-2080 sl. 20 ár?
- Hver er heildarupphæð styrkveitinga (beinna og óbeinna) til Sauðfjárseturs á Ströndum, kt 580209-1570 sl. 20 ár?“
Svar sveitarstjórnar við bréfi Þorgeirs:
Samkvæmt samantekt skrifstofustjóra Strandabyggðar er um eftirfarandi upphæðir að ræða:
- Samtals 175.062.792.- Meðal verkefna á tímabilinu eru viðbygging við leikskólann, ýmis viðhaldsverkefni við grunnskólann, réttarbyggingar, þjónustuhús á tjaldsvæði, framkvæmdir í Þróunarsetri og fleira.
- Við skiljum spurninguna þannig að átt sé við verkefni sem Trésmiðjan Höfði fékk eftir útboð og þau eru þrjú talsins.
- Nei, viðgerða- og viðhaldsverkefnin við grunnskólann voru ekki boðin út.
- Já, báðar viðbyggingarnar sem ráðist hefur verið í síðastliðin 20 ár voru boðnar út.
- Samtals 53.446.462.- Upphæðin byggist að langmestu leyti á styrktar- og þjónustusamningi vegna reksturs Upplýsingamiðstöðvar ferðamála fyrir Strandabyggð, frá árinu 2008 til 2020. Áður rak sveitarfélagið sjálft Upplýsingamiðstöðina í áratug í anddyri félagsheimilisins. Samningurinn var ekki framlengdur í lok árs 2020, en þá var samþykktur rekstrarstyrkur til stofnunarinnar 2 millj. á ári til þriggja ára frá og með 2021. Framlög sveitarfélagsins til Strandagaldurs ses utan þessa samnings á tímabilinu eru samtals 315 þúsund.
- Samtals 7.662.500.- Sauðfjársetur á Ströndum ses hefur samkvæmt styrktarsamningum fengið 850 þús á ári í rekstrarstuðning frá sveitarfélaginu frá árinu 2015 og áður 600 þús á ári fjórum sinnum. Þess utan framlög að upphæð 162.500.- Til viðbótar afsalaði Strandabyggð sér þriðjungshlut í félagsheimilinu Sævangi, sem kom frá Ungmennafélaginu Hvöt þegar það var lagt niður, til Sauðfjárseturs á Ströndum ses á árinu 2020. Áður hafði sveitarfélagið afsalað sér 2/3 hlutum hússins árið 2007 til Félags áhugamanna um Sauðfjársetur, þeim hlutum sem áður tilheyrðu Kirkjubólshreppi, Kvenfélaginu Björk og Lestrarfélagi Tungusveitar.
Oddvita falið að senda svar við erindi Þorgeirs.
- Aðalfundur Sorpsamlags Strandasýslu ehf frá 6. ágúst 2021
Lögð fram til kynningar fundargerð frá aðalfundi Sorpsamlags Strandasýslu ehf frá 6. ágúst 2021. Sveitarstjórn óskar eftir að fundargerðin verði birt á vef sveitarfélagsins.
4. Fundargerð Fræðslunefndar Strandabyggðar frá 5. ágúst 2021
Lögð fyrir fundinn fundargerð Fræðslunefndar Strandabyggðar frá 5. ágúst 2021. Sveitarstjórn tekur eindregið undir þær hugmyndir sem settar eru fram í lið 1. Varðandi lið 4 þá samþykkir sveitarstjórn samhljóða skóladagatöl grunnskóla og leikskóla, með þeirri breytingu sem nefndin lagði til um fækkun vetrarfrísdaga úr fjórum í tvo. Sveitarstjórn samþykkir fundargerðina að öðru leyti.
5. Samningur við Vestfjarðastofu um stuðning við Þróunarsetrið á Hólmavík á árinu 2021, í tengslum við styrktarflokkinn: Nýsköpunar- og samfélagsmiðstöðvar
Lagður fram samningur við Vestfjarðastofu um stuðning við sveitarfélagið Strandabyggð á árinu 2021 um verkefnið Þróunarsetrið á Hólmavík. Framlagi Vestfjarðastofu fagnað og oddvita falið að skrifa undir samninginn. Sigurði Líndal þakkað fyrir veitta aðstoð.
Fundargerðin yfirfarin og samþykkt.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 16:36.
Jón Gísli Jónsson
Guðfinna Lára Hávarðardóttir
Ásta Þórisdóttir
Pétur Matthíasson
Jón Jónsson