Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd - 12. mars 2018
Fundur var haldinn í Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar mánudaginn 12. mars, kl. 20:00 að Höfðagötu 3.
Fundinn sátu: Ásta Þórisdóttir, Júlíus Jónsson, Salbjörg Engilbertsdóttir, Jóhanna Rósmundsdóttir og Júlíana Ágústsdóttir. boðaði forföll. mætti í stað. Angantýr Ernir Guðmundsson mætti sem fulltrúi ungmennaráðs. Íris Ósk Ingadóttir tómstundafulltrúi sat einnig fundinn og ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- Samfelldur dagur barnsins
- Fjárhagsáætlun
- Styrktar umsókn
- Sumarstarfið
- Erindi frá Leikfélagi Hólmavíkur
- Önnur mál
Þá var gengið til dagskrár.
- Samfelldur dagur barnsins
Stöðuskýrsla kynnt og í framhaldi lagt til að á næsta skólaári verði Samfelldur dagur einnig hjá miðstiginu.
Næstu skref lögð fyrir á næsta fundi. - Fjárhagsáætlun
Farið yfir niðurstöður úr fjárhagsáætlunargerð. - Styrktar umsókn
Styrktarbeiðni vísað til sveitarstjórnar með öðrum styrkumsóknum. - Sumarstarfið
Farið var yfir hvaða sumarstarf verður í boði fyrir börn í sveitarfélaginu. - Erindi frá Leikfélagi Hólmavíkur
Leikfélagið óskar eftir því að einstaklingar fæddir 2000 fái að sækja um að taka þátt í Strandir í verki sem samstarfsverkefni Leikfélags Hólmavíkur, Strandabyggdar, Sauðfjársetur og Rannsóknarsetur HÍ á Ströndum.
Erindi er samþykkt svo lengi sem launakostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar. - Önnur mál
Hvergi er það í lögum að börn eigi að fá stuðning í frítímaþjónustu og hver eigi að greiða þann launakostnað. Þetta var leyst hér í Strandabyggð af félagsmálastjóra sem nýtti liðveislu sem sum börn eiga rétt á. Það gengur ekki upp því liðveisla er ekki þess eðlis að hún falli inn í frítímastarf t.d. ef starfsmaður sem sinnir liðveislu er veikur er enginn í hans stað og ef barnið er veikt þá á á starfsmaður í liðveislu ekki að mæta sem bitnar á launum. Börn þurfa að hafa stuðningsfulltrúa í frítímaþjónustu sem er í Samfellunni og í Skólaskjóli en ekki er gert ráð fyrir launakostnaði fyrir þessa stuðningsfulltrúa í fjárhagsáætlun. Óskað er eftir því að sveitarstjórn veiti stuðning fyrir þau börn sem þurfa til að forðast mismunun í sveitarfélaginu okkar.
Fundi slitið kl. 22:00