Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd - 20. júní 2018
Fundur var haldinn í Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar miðvikudaginn 20. júní, kl. 16:30 að Höfðagötu 3.
Fundinn sátu: Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir, Júlíus Jónsson, Jóhanna Rósmundsdóttir og Matthías Lýðsson. Angantýr Ernir Guðmundsson boðaði forföll og Esther Ösp Valdimarsdóttir mætti í hans stað. Enginn fulltrúi mætti frá ungmennaráði. Íris Ósk Ingadóttir tómstundafulltrúi sat einnig fundinn og ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- Samfelldur dagur barnsins, mötuneytisþjónusta
- Hamingjudagar
- Menningarverðlaun Strandabyggðar
- Önnur mál
Þá var gengið til dagskrár.
- Samfelldur dagur barnsins, mötuneytisþjónusta
TÍM-nefnd óskar eftir því að mötuneytisþjónusta fyrir grunn- og leikskóla verði boðin út og að allur matur fyrir grunnskólann verði framreiddur í félagsheimilinu
- Hamingjudagar
Farið var yfir dagskrá Hamingjudaga og hlutverk nefndar á hátíðinni
- Menningarverðlaun Strandabyggðar
Farið yfir tilnefningar og ákveðið hver hlýtur verðlaunin
- Önnur mál
Engin önnur mál á dagskrá
Fundi slitið kl.18:22