Fundargerð ungmennaráðs 11. maí 2020
Fundur var haldinn í ungmennaráði 11.5.2020 Kl.17:00 og var staðsettur í Hnyðju.
Eftirtaldir nefndarmenn eru mættir: Benedikt Jónsson, Elín Victoría Gray, Unnur Erna Viðarsdóttir, Jóhanna Rannveig Jánsdóttir, Valdimar Kolka Eiríksson og Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir tómstundafulltrúi situr einnig fundinn og ritar fundargerð.
Fundur settur 17.00
Fundarefni:
- Tiltekt í kjallara félagsheimilis
- Síðasta ungmennaþing fyrir sumarfrí
- Covid – 19
- Spiladagurinn
- Önnur mál
Þá er gengið til dagskrár:
1. Tiltekt í kjallara: rætt um málingarvinnu, breytta aðstöðu í kjallara. Vinna fyrir utan við Félagsheimilið aðkoma fatlaðra í kjallara. Farið í gegnum dót í kjallara.
2. Ungmennaþing fyrir sumarfrí: Dagskrá: Spiladagurinn ákvarðanir varðandi skiptingu á vinnu og annað skipulag er varðar daginn. Formaður talar við skólastjóra um tímasetningu, tillaga að dagsetningu er 25.maí fyrir hádegi.
3. Covid – 19: Ungmennaráð ræddi um covid-19 og vill ítreka að farið verður eftir almannavörnum á spiladaginn og á öðrum viðburðum félagsmiðstöðvar og ungmennahúss.
4. Spiladagur: Hugmynd að dagsetningu 6. júní og verður það lagt fyrir á ungmennaþingi. Hugmyndir að skipulagi rætt og ákveðið að 16 ára og eldri verði eftir kl.22. Áhersla verður á að Ungmennahúsið Fjósið fái tíma eftir kl.22.
5. Önnur mál: ekki fleira tekið fyrir.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl: 18:40