Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd 8.apríl 2015
Fundur var haldinn í Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd Strandabyggðar miðvikudaginn 8. apríl 2015, kl. 16:00, í Hnyðju, Höfðagötu 3, Hólmavík.
Mættir: Haraldur V. A. Jónsson, Bryndís Sveinsdóttir, Guðrún Elínborg Þorvaldsdóttir og Jóhann L. Jónsson. Andrea K. Jónsdóttir ritaði fundargerð.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Undirbúningur vegna fundar með bændum um fjárréttarmál í Strandabyggð
- Önnur mál
Þá var gengið til dagskrár.
- Undirbúningur vegna fundar með bændum um fjárréttarmál í Strandabyggð
Í fjárhagsáætlun fyrir 2015 er gert ráð fyrir 3,5 milljónum í endurbætur fjárrétta í Strandabyggð. Ástand þeirra þriggja rétta sem nú eru er ekki gott og þarfnast þær allar töluverðs viðhalds, jafnvel endurbyggingar. Safna þarf hugmyndum frá bændum, hvernig vilja þeir sjá þessi mál þróast í sveitarfélaginu. - Önnur mál. Jóhann Lárus var með myndir af hárri sjávarstöðu í febrúar á Hólmavík. Bæta þarf sjó varnir innan hafnar og meðfram Hafnarbraut. ADH nefnd beinir því til sveitarstjórnar að kanna möguleika á úrbótum.
Fundi slitið kl. 17:35