Atvinnumálanefnd- 15. apríl 2009
Fundargerð Atvinnumálanefndar 15. apríl 2009
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Strandabyggðar miðvikudaginn 15. apríl 2009 kl. 17:00 á skrifstofu Strandabyggðar. Þorseinn Newton(formaður) setti fundinn og stjórnaði honum en aðrir fundarmenn voru Lára G. Agnarsdóttir(ritari), Valdimar Guðmundsson(varamaður) og Jón Stefánsson(varamaður) Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri og Viktoría Rán Ólafsdóttir frá Atvest. Eftirfarandi dagskrá lá fyrir fundinum:
1. Klára stefnumótunar- og markmiðsstetningu Atvinnumálanefndar
2. Skipulagning fundarins með ferðaþjónustuaðilum
3. Önnur mál
Þá var gengið til dagskrár.
1.Klára stefnumótunar- og markmiðsstetningu Atvinnumálanefndar
Þorsteinn lagði fram tillögur að hlutverki nefndainnar, var hún rædd og verður send til samþykktar sveitarstjórnar.
2.Skipulagning fundarins með ferðaþjónustuaðilum
Rætt var um fundinn sem verður haldinn með ferðaþjónustuaðilum og hvernig önnur sveitarfélög hafa reynt að mæta aukningu ferðamanna á sínu svæði. Rætt var um hvaða þjónustu við höfum upp á að bjóða og hvernig við ætlum að taka á móti aukinni umferð ferðamanna þegar vegurinn um Arnkötludal verður opnaður.
3. Önnur mál
Rætt var um að halda fund með ferðaþjónustuaðilum 24.apríl kl 16:00 á Cafe Riis.
Fleira var ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og hún samþykkt. Fundi slitið kl. 18:35.