Landbúnaðar- og dreibýlisnefnd - 24. október 2011
Fundarefni:
1. Tillaga að breytingu á nefndarfyrirkomulagi í Strandabyggð.
2. Skipun í starfshóp um reglur um refa- og minkaveiði í Strandabyggð.
3. Greiðsla fyrir grenjavinnslu og vetrarveiði, erindi frá Jóni Halldórssyni.
4. Önnur mál.
1. Tillaga að breytingu á nefndarfyrirkomulagi í Strandabyggð.
Nefnin mótmælir harðlega sameiningu Landbúnaðar og dreifbýlisnefndar og Atvinnumála og hafnarnefndar. Nefndin telur að með þessu minnki vægi dreifbýlismála í nefndaskipulaginu og landbúnaðar og dreifbýlismál yrðu afgangstærð í nýrri sameinaðri nefnd. Hinsvegar styður nefndin að sveitarstjórnarmaður verði í hverri nefnd en þó telur nefndin ekki nauðsynlegt að sveitarstjórnarmenn verði skikkaðir formenn nefnda.
2. Skipun í starfshóp um reglur um refa- og minkaveiði í Strandabyggð.
Nefndin tlilnefnir Jón Stefánsson, Mörtu Sigvaldadóttur og Viðar Guðmundsson.
3. Greiðsla fyrir grenjavinnslu og vetrarveiði, erindi frá Jóni Halldórssyni.
Erindinu var frestað þangað til tillögur starfshóps um refa og minnkaveiðar í Strandabyggð liggja fyrir.
4. Önnur mál.
Nefndin ítrekar fyrri áliktun um stækkun skólabíls fyrir suðursvæðið.
Nefndin leggur til að sveitarstjórn ítreki við Vegagerðina að upplýsingar um færð á vegum sem skólabílar fara um birtist áður en skólabílar þurfa að fara af stað á morgnana.
Fleira ekki tekið fyrir fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 18.50
Jón Stefánsson (sign)
Marta Sigvaldadóttir (sign)
Magnús Sveinsson (sign)
Viðar Guðmundsson (sign)
Dagrún Magnúsdóttir (sign)