Landbúnaðarnefnd 20. apríl 2009
Fundur haldinn í Landbúnaðarnefnd mánudaginn 20. apríl 2009 á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl. 17:00. Mættir voru fundarmennirnir Drífa Hrólfsdóttir, Sverrir Guðbrandsson, Magnús Sveinsson, Jón Stefánsson og Marta Sigvaldadóttir. Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
1. Grenjavinnsla 2009.
2. Kynning á skýrslu milliþinganefndar Búnaðarþings um fjallskil og ný fjallskilasamþykkt fyrir Strandasýslu.
3. Önnur mál.
Þá var gengið til dagskrár.
1. Grenjavinnsla 2009. Lagt er til að sömu aðilar sjái um grenjavinnslu og síðustu ár en þeir eru:
Indriði Aðalsteinsson Mórilla/Ísafjarðará.
Magnús Steingrímsson Selá/Grjótá.
Þorvaldur G. Helgason Grjótá/Hrófá.
Ragnar Bragason Hrófá/Forvaða.
Torfi Halldórsson Forvaða/Ennisháls.
Þorvaldur G. Helgason Ennisháls/Þambárvellir.
Magnús Sveinsson Þambárvellir.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
2. Kynning á skýrslu milliþinganefndar Búnaðarþings um fjallskil. Lögð er fram til kynningar skýrsla milliþinganefndar Búnaðarþings um fjallskil ásamt nýrri fjallskilasamþykkt fyrir Strandasýslu. Samþykkt var að afgreiða málið að viku liðinni.
3. Önnur mál. Engin önnur mál.