Landbúnaðarnefnd 27. apríl 2009
Fundur haldinn í Landbúnaðarnefnd mánudaginn 27. apríl 2009 á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl. 17:00. Mættir voru fundarmennirnir Drífa Hrólfsdóttir, Magnús Sveinsson, Jón Stefánsson og Reynir Björnsson varamaður. Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
1. Kynning á skýrslu milliþinganefndar Búnaðarþings um fjallskil og ný fjallskilasamþykkt fyrir Strandasýslu.
2. Önnur mál.
Þá var gengið til dagskrár.
1. Kynning á skýrslu milliþinganefndar Búnaðarþings um fjallskil og ný fjallskilasamþykkt fyrir Strandasýslu. Lögð er fram til kynningar skýrsla milliþinganefndar Búnaðarþings um fjallskil ásamt nýrri fjallskilasamþykkt fyrir Strandasýslu. Lagðar voru til eftirfarandi breytingar á nýrri fjallskilasamþykkt: Að í 21. gr. breytist skilarétt í Skeljavíkurrétt úr laugardegi í sunnudag. Þá ber að fella út skilarétt í Bitrufirði norðan varnarlínu þar sem engin skilarétt er til staðar og ókunnu fé ekið yfir í Kollafjörð. Þá er lagt til í 20. gr. að fella út "að höfðu samráði við sveitarstjórn". Þá vill nefndin koma því áleiðis varðandi 14. gr. að eðlilegt sé að landeigandi geti tekið þátt fjallskilum í stað þess að greiða gjald eins og kveðið er á um í greininni.
2. Önnur mál. Brýnt er að koma upp skilarétt í Kollafirði þar sem engin skilarétt er til staðar heldur hafa verið notuð fjárhús.
Fundargerð lesin upp og hún samþykkt. Fundi slitið kl. 18.15.