Fræðslunefnd - 14. apríl 2014
Fundur var haldinn hjá fræðslunefnd 14. apríl 2014 og hófst hann kl. 17.00 á skrifstofu Strandabyggðar í Þróunarsetrinu.
Mætt voru Viðar Guðmundsson, Ester Sigfúsdóttir, Ragnar Bragason, Sigurður Árni Vilhjálmsson, Ingibjörg Sigurðardóttir.
Málefni leikskóla:
Boðuð kl. 17.00: Hlíf Hrólfsdóttir fulltrúi starfsmanna, og Jóhanna Rósmundsdóttir fulltrúi foreldra
1. Staðardagskrá.
Unnið í Staðardagskrá
2. Fræðslunefnd þakkar Sigrúnu Ásgeirsdóttur vel unnin störf og býður Ölmu Benjamínsdóttur velkomna aftur til starfa.
Málefni grunnskóla:
Boðuð kl. 17.45: Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir skólastjóri, Ingibjörg Emilsdóttir aðstoðarskólastjóri, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir fulltrúi kennara, Guðrún Þorvaldsdóttir fulltrúi foreldra
3. Staðardagskrá 21.
Unnið í Staðardagskrá.
4. Uppsögn Huldu Ingibjargar Rafnardóttur skólastjóra
5. Erindi frá Sigríði Drífu Þórólfsdóttur
6. Erindi frá Skólaráði
Nefndin leggur til að leitað verði til Guðjóns Ólafssonar fræðslustjóra í Húnaþingi til að vinna að skólamálum í Strandabyggð vegna liða 4, 5 og 6.
Fræðslunefnd lýsir yfir stuðningi við núverandi skólastjórnendur.
7. Önnur mál.
Engin önnur mál.
Fundi slitið kl. 19:55.