Menningamálanefnd - 11. júní 2009
Fundur var haldinn í Menningarmálanefnd, fimmtudag 11 júní 2009, á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann klukkan 17:00. Mætt voru: Arnar S. Jónsson formaður, Rúna Stína Ásgrímsdóttir, Jón Halldórsson og Guðrún Guðfinnsdóttir varamaður. Jóhanna Ása Einarsdóttir boðaði forföll. Kristín Sigurrós Einarsdóttir framkvæmdastjóri Hamingjudaga mætti einnig á fundinn. Arnar S. Jónsson ritaði fundargerð. Formaður setti fundinn og gengið var til dagskrár:
- Hamingjudagar 2009, staða mála og næstu verkefni
- Önnur mál
- Hamingjudagar 2009, staða mála og næstu verkefni.
Kristín dreifði skýrslu til nefndarmanna sem skýrði ítarlega frá núverandi stöðu í hinum ýmsu verkþáttum í undirbúningi Hamingjudaga. Farið var yfir hvert atriði fyrir sig og þau rædd í kjölinn.
Rætt var um listamenn og skemmtanir, íþróttamót sem fyrirhugað er að hafa inni í dagskrá hátíðarinnar, gæslumál og hljóðmál. Fram kom í skýrslu Kristínar að fegrun bæjarins gengur vel og skreytingamál eru í góðum farvegi. Rætt var um að skreytingavinna þyrfti að hefjast sem allra fyrst og helst að vera lokið á fimmtudegi fyrir Hamingjudaga, en þá kemur sjónvarpsteymi til að taka upp nokkrar keppnisgreinar í og við Hólmavík í tengslum við kraftakeppnina Vestfjarðavíkingurinn.
Rætt var um málefni tjaldvæðis og um markaðssetningu hátíðarinnar. Ákveðið var að dagskrárbæklingur, sem nota á sem helsta markaðssetningarvopn Hamingjudaganna, yrði settur í póst í síðasta lagi miðvikudaginn 24. júní.
Aðrir dagskrárliðir voru reifaðir, s.s. dansleikur, diskótek, kökuhlaðborð, sýningarhald, sölutjöld, styrkir og ýmislegt fleira varðandi hátíðina. Ákveðið var að veita verðlaun fyrir skreytingar í bænum; best skreytta húsið, best skreytta fyrirtækið, best skreytta hverfið og flottustu fígúruna.
Nefndin lýsti yfir ánægju sinni með skýrslu Kristínar og áætlunina í heild sinni. Nefndarmenn voru sammála um að dagskrárdrögin litu vel út og aðeins veðurguðirnir gætu komið í veg fyrir frábæra skemmtun á Hamingjudögum 2009. Framkvæmdastjóri lýsti að sama skapi yfir ánægju sinni með samskipti við nefndarmenn sem hafa að miklu leyti farið í gegnum tölvupóst undanfarnar vikur.
2. Önnur mál
Engin önnur mál voru á dagskrá.
Að lokum var ákveðið að stefna að því að halda næsta nefndarfund mánudaginn 22. júní kl. 17:00. Fleira ekki gert, fundi slitið kl 18:47.
Guðrún Guðfinnsdóttir (sign) Jón Halldórsson (sign)
Arnar Snæberg Jónsson (sign) Rúna Stína Ásgrímsdóttir (sign)