Tómstunda-, íþróta- og menningarnefnd - 5. febrúar 2015
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- 1. Formaður Björgunarsveitarinnar Dagrenningar boðaður á fundinn
- Sigurður Vilhjálmsson, formaður og Pétur Matthíasson, varaformaður sóttu fundinn.
- Björgunarsveitin Dagrenning rekur hús að Höfðagötu og á það skuldlaust. Sæmilega gengur að reka húsið en hentugra væri að hafa skemmu til umráða. Bygging hennar væri þó mjög dýr.
- Björgunarsveitin á snjóbíl og tvo snjósleða en fær lánuð tæki hjá Orkubúi Vestfjarða þegar upp á vantar.
- Öll verkefni Dagrenningar eru skráð í aðgerðargrunn Landsbjargar, hversu stór sem þau eru.
- Dagrenning heldur úti neyðarskýlum á Trékyllisheiði og Skjaldarbjarnarvík.
- Árið 2014 voru útköllin á að giska 32, 2013 32 en 54 árið 2012.
- 106 eru skráðir í Björgunarsveitina, 36 eru á útkallslista en um 10 eru virkir.
- Til að geta verið á útkallslista er kostur að hafa sótt námskeið.
- Björgunarsveitin sjálf borgar fyrir námskeið á vegum Landsbjargar og þau kosta töluvert.
- Endurnýjun sveitarinnar gengur misvel og hefur ekki endilega verið markviss.
- Stefnt er að því að byrja með ungliðastarf á nýjan leik en í því felst töluverð vinna.
- Fjáröflun sveitarinnar felst í dósasöfnun, flugeldum, blómasölu, sölu á neyðarkalli og kaffi á sjómannadaginn.
- Mesta vinnan felst ekki endilega í útköllum heldur frekar í fjáröflunum og viðhaldi á búnaði.
- Á vegum björgunarsveitarinnar er farið í ferðir og sóttir fundir, eins eru skipulagðar heimsóknir á milli sveita.
- Yfir veturinn eru vinnukvöld í björgunarsveitarhúsinu á sunnudagskvöldum kl. 20 og þangað eru allir velkomnir.
- Haldin er dagbók um allt sem er gert, vinnukvöld, hverjir mættu o.s.frv.
- Úthlutun frá Landsbjörgu fer eftir því hvaða tæki sveitin getur útvegað, hversu marga einstaklinga, hvort unglingadeild sé í sveitinni o.s.frv.
- Dagrenning fær styrk frá Strandabyggð en ekki hefur verið gerður styrktarsamningur. Hvatt er til þess að gengið verði frá því sem fyrst.
- Aðalfundur fer fram í apríl en þar eru nýjir félagar formlega teknir inn.
- Starf í Dagrenningu er skemmtilegt og gefandi starf í góðum félagsstarf þar sem gefst kostur á að þjóna samfélaginu.
- Dagrenning er með Facebook síðu og eru áhugasamir hvattir til að fylgjast með henni.
- 2. Sumarstörf, vinnuskóli og námskeið
a.TÍM nefndin leggur til að kannaður verður sá möguleiki að bjóða upp á frístundanámskeið fyrir yngri börn í tvær til þrjár vikur næstkomandi sumar.
b. TÍM nefndin leggur til að tómstundafulltrúa, í samstarfi við verkstjóra Áhaldahúss, verði falið að endurskipuleggja starf vinnuskólans og bjóða upp á vinnu til 18 ára aldurs.
- 3. Skipulag Hörmungardaga
Farið yfir dagskrá Hörmungardaga 20.-22. febrúar og hugmyndir ræddar.
- 4. Sameiginlegar starfsauglýsingar
Lagt er til að Strandabyggð auglýsi sameiginlega eftir öllu sumarstarfsfólki, óháð deildum.
- 5. 100 ára kosningarafmæli kvenna
Hugmyndir að hátíðarhöldum ræddar.
- 6. Önnur mál
a. Ákveðið að bjóða formann Geislans á næsta fund TÍM nefndar
b. TÍM nefndin minnir sveitarstjórn á innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en sveitarfélaginu stendur til boða gjaldfrjáls fræðsla um innleiðinguna á vegum UNICEF.
c. Nefndin leggur til að hugað verði að mótun stefnu sveitarfélagsins í menningarmálum annars vegar og íþróttamálum hins vegar.
d. Nefndin telur mikilvægt að halda áfram vinnu við uppbyggingu íþróttavallar í Brandskjólum, skilgreina þarf næstu skref, hvert sé hlutverk sveitarfélags og íþróttafélaga, hver beri ábyrgð á verkefninu innan sveitarfélagsins.
Fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 22.15
Ingibjörg Benediktsdóttir
Ásta Þórisdóttir
Júlíus Jónsson
Salbjörg Engilbertsdóttir
Júlíana Ágústsdóttir