Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd - 15. ágúst 2017
Fundur var haldinn í Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar fimmtudaginn 8. júní, kl. 16:30 á skrifstofu Strandabyggðar.
Fundinn sátu: Ásta Þórisdóttir, Júlíana Ágústsdóttir, Jóhanna Rósmundsdóttir, Lýður Jónsson sem varamaður fyrir Salbjörgu Engilbertsdóttur. Júlíus Freyr Jónsson og Máney Dís Baldursdóttur, fulltrúi ungmennaráðs, boðuðu forföll. Íris Ósk Ingadóttir, tómstundafulltrúi sat fundinn og ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- Starf tómstundafulltrúa
Nýr tómstundafulltrúi boðinn velkominn til starfa og fór hún yfir hvernig starfi hennar verði háttað næstu mánuðina en hún verður í takmörkuðu starfi vegna fæðingaorlofs. - Samfelldur dagur barnsins
Skipulag Samfells dags kynnt fyrir TÍM- og Fræðslunefnd af tómstundafulltrúa og skólastjóra. - Sumarstarf
a) Vinnuskólinn
Farið var yfir punkta frá umsjónarmönnum og rætt hvað mætti betur fara.
Mikilvægt er að það sé stuðningur fyrir einstaklinga sem þurfa stuðning.
b) Skapandi sumarstörf
Farið var yfir skýrslu sem kom frá Dagrúnu Ósk Jónsdóttur umsjónarmanni Skapandi sumarstarfa.
Viljum við koma á framfæri mikilli ánægju með þetta framtak.
c) Náttúrubarnaskólinn
Náttúrubarnaskólinn gekk vel í sumar. - Menningardvöl
Tveir hópar af fjórum mættu og nýttu aðstöðuna. - Hamingjudagar
Hamingjudagar 2017 gengu mjög vel og var mikil ánægja með framtak fyrirtækja. Að halda hátíðina að ári er í skoðun. - Heilsueflandi samfélag
TÍM nefndin leggur til að sveitarfélagið sæki um að gerast Heilsueflandi samfélag og fari í þá vinnu eftir áramót þegar tómstundafulltrúi er kominn í fullt starf og leiði þá vinnu.
- Önnur mál
Fundi slitið kl. 19:00