Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd 4. apríl 2019
Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd – 4. apríl 2019
Fundur var haldinn í Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar fimmtudaginn 4. apríl 2019, kl. 17:00 að Höfðagötu 3.
Fundinn sátu: Þorgeir Pálsson, Ragnheiður Birna Guðmundadóttir og Jóhanna G. Rósmundsdóttir.
Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir Tómstundafulltrúi sat einnig fundinn.
Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
1. Nýr tómstundafulltrúi
2. Samfés-ferð
3. Sumarnámskeið
4. Vinnuskólinn
5. Hamingjudagar
6. Menningardvöl
7. Önnur mál
Þá var gengið til dagskrár:
1.Nýr tómstundafulltrúi kynntur.
2. Farið var á Samfés með börn í 8.-10. bekk. Ferðin tók heila helgi, skemmtunin byrjaði með stóru balli á föstudagskvöldið. Hópurinn eyddi svo restinni af helginni í viðburði.
3. Farið var yfir hvaða sumarnámskeið verða í boði fyrir börn í Strandabyggð sumarið 2019.
4. Vinnuskólinn fyrir sumarið 2019 lagður til kynningar.
5. Hamingjudagar 2019 verða haldnir 28.-30. júní. Kynning og hugmyndir ræddar.
6. Menningardvölin kynnt, auglýsing fer út fljótlega.
7. Engin mál borin upp.
Fundi slitið 18:30