Fundargerð Ungmennaráðs - 12. desember 2016
Fundur var haldinn í Ungmennaráði Strandabyggðar mánudaginn 12. desember kl. 17:00 í Fjósinu, ungmennahúsi Hólmavíkur, Hafnarbraut 19. Mættir voru: Kristbergur Ómar Steinarsson, Birna Karen Bjarkadóttir, Guðrún Júlíana Sigurðardóttir, Máney Dís Baldursdóttir og Kristín Lilja Sverrisdóttir. Fundargerð skrifaði Íris Ósk Ingadóttir.
Fundur er settur.
Á fundardagskrá var eftirfarandi:
- Erindisbréf Ungmennaráðs
Farið yfir erindisbréf Ungamennaráðs - Markmið Ungmennaráðs
Auka framtíðaröryggi ungmenna, auka félagslíf ungmenna og efla lýðheilsu ungmenna. - Kosið í hlutverk
Máney Dís Baldursdóttir er áheyrnafulltrúi í Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd
Kristín Lilja Sverrisdóttir er áheyrnafulltrúi í Umhverfis- og skipulagsnefnd
Guðrún Júlíana Sigurðardóttir er formaður
Birna Karen Bjarkadóttir er áheyrnafulltrúi í Fræðslunefnd
Kristbergur Ómar Steinarsson áheyrnafulltrúi í Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd - Önnur mál
Engin önnur mál á dagskrá
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið 18:30.