27. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps - 28. janúar 2015
27. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps haldinn 28. janúar 2015 að Höfðagötu 3 á Hólmavík kl. 10:30. Mætt voru: Ingibjörg Emilsdóttir (Strandabyggð), Unnsteinn Árnason (Strandabyggð) Áslaug Guttormsdóttir (Reykhólahreppi), Jenny Jensdóttir (Kaldrananeshreppi) og Oddný Þórðardóttir (Árneshreppi) í síma og María Játvarðardóttir félagsmálastjóri sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
- María lagði til að fjárhagsaðstoð myndi hækka um 2% samkvæmt neysluvísitölu. Samþykkt samhljóða.
- María kynnti námskeið fyrir fulltrúa í félagsmálanefndum og starfsmenn félagsþjónustu sveitarfélaga sem haldið er á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga nú á vormisserinu. Nokkrar umræður urðu um þetta mál en engin ákvörðun tekin. Námskeiðið kostar 8.000 fyrir hvern þátttakanda. Jenny mælti með að fulltrúar færu á námskeiðið.
- Umsókn um námsaðstoð í janúar – maí 2015.
Samþykkt samhljóða og fært í trúnaðarbók.
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Umsókn um fjárhagsaðstoð fyrir janúar – mars á móti hálfum atvinnuleysisbótum.
Samþykkt samhljóða og fært í trúnaðarbók.
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Umsókn um fjárhagsaðstoð fyrir janúar – febrúar á móti hálfum atvinnuleysisbótum
Samþykkt samhljóða og fært í trúnaðarbók.
Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 11:30
________________________________ ___ ______________________________
Ingibjörg Emilsdóttir Unnsteinn Árnason
________________________________ __________________________________
Jenny Jensdóttir Áslaug Guttormsdóttir
________________________________
Oddný G. Þórðardóttir