29. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps - 1. mars 2016
29. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps haldinn 1. 2016 mars kl. 13:00, á Hólmavík. Mætt voru: Ingibjörg Emilsdóttir (Strandabyggð), Unnsteinn Árnason (Strandabyggð), Jenny Jensdóttir (Kaldrananeshreppi), Áslaug Guttormsdóttir (Reykhólahreppi) Oddný Þórardóttir (Árneshreppi) var í síma. María Játvarðardóttir, félagsmálastjóri ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Hækkun á fjárhagsaðstoð frá 1. jan 2016. Lagt er til að fjárhagsaðstoð hækki um 3% sem er sama hækkun og á greiðslum Vinnumálastofnunar.
Fjárhagsaðstoð, tillaga að hækkun 1. jan 2015 2% |
1.jan.16 |
3% |
||||||
2014 |
2015 |
2016 |
||||||
einstaklingur |
130.561 |
133.172 |
137.167 |
|||||
Tveggja manna fjölsk |
208.898 |
213.076 |
219.468 |
|||||
Þriggja manna fjölsk |
235.100 |
239.802 |
246.996 |
|||||
fjögurra manna fjölsk |
261.123 |
266.345 |
274.335 |
|||||
fimm manna fjölsk |
287.235 |
292.979 |
301.768 |
|||||
sex manna fjölsk |
313.347 |
319.613 |
329.201 |
|
||||
Samþykkt.
Nokkrar umræður urðu um fjölda funda í Velferðarnefnd en nefndin hefur ekki komið saman síðan í apríl á síðasta ári. Fá erindi hafa borist nefndinni á þessum tíma og hefur félagsmálastjóri haft þann hátt á að þegar erindi hafa borist sem falla innan reglna um fjárhagsaðstoð að hafa samband við fulltrúa viðkomandi sveitarfélags og fá samþykki fyrir að veita aðstoðina. Nefndin gerði ekki athugasemdir við þessa tilhögun en þó þótti nokkuð langt frá síðasta fundi.
2. Umsóknir um fjárhagsaðstoð
1. Sótt er um fjárhagsaðstoð í júlí, ágúst og september 2015 á móti hálfum atvinnuleysisbótum. Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
2. Sótt er um fjárhagsaðstoð á móti bótum Tryggingastofnunar í desember.
3. Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
4. Sótt er um fjárhagsaðstoð í desember . Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
3. Umsóknir vegna fatlaðra
1. Sótt er um liðveislu 20 tíma á mánuði frá apríl – sept.
2. Sótt er um ferðir með ferðaþjónustu fatlaðra í einn mánuð í Reykjavík vegna endurhæfingar.
Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
4. Umsóknir vegna fatlaðra barna
1. Sótt er um sumarnámskeið fyrir fatlað barn.
Samþykkt og fært í trúnaðarbók
2. Sótt er um þoskaþjálfun tvisvar í viku í sumar fyrir fatlað barn.
Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:00
________________________________ ______________________________________
Ingibjörg Emilsdóttir Unnsteinn Árnason
_________________________________ _______________________________________
Jenny Jensdóttir Áslaug Guttormsdóttir
__________________________________
Oddný Þórðardóttir