34. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps - 26. september 2017
34. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps var haldinn í Þróunarsetrinu á Hólmavík 26. september 2017 kl. 17:00. Mættir voru: Ingibjörg Emilsdóttir (Strandabyggð), Unnsteinn Árnason (Strandabyggð), Vilberg Þráinsson, (Reykhólahreppi), Jenny Jensdóttir (Kaldrananeshreppi), Hrefna Þorvaldsdóttir (Árneshreppi) sem var í síma og María Játvarðardóttir, félagsmálastjóri sem ritaði fundargerð.
1. Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu umfram húsnæðisbætur sem veittar eru á grundvelli laga um húsnæðisbætur nr. 75/2016. Á 32. fundi Velferðarnefndar samþykkti nefndin nýjar reglur um sérstakan húsnæðisstuðning. Í ljós hefur komið að þær breytingar sem gerðar hafa verið hafa komið þeim sem njóta stuðningsins verr en áður og hefur Velferðarráðuneytið farið þess á leit við sveitarfélögin að reglurnar verði endurskoðaðar. Leggur félagsmálastjóri til eftirfarandi breytingar á reglum Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps: Í reglum um stuðning við nemendur 15-17 ára verði ekki aðeins veittur stuðningur til þeirra unglinga sem leigja á heimavist og námsgörðum heldur einnig til þeirra nemenda sem leigja á almennum markaði.
Fundarmenn samþykktu tillöguna samhljóða
Í reglunum var miðað við að upphæð húsnæðisstuðnings væri 600 kr. á móti 1.000 kr. húsnæðisbóta og leggur félagsmálastjóri til að sú upphæð verði hækkuð í 900 kr á móti 1.000 kr. húsnæðisbóta.
Fundarmenn samþykktu tillöguna samhljóða.
Gert er ráð fyrir að sérstakur húsnæðisstuðningur verði auglýstur á heimasíðum sveitarfélaganna og verður það gert.
2. Umsóknir um sérstakan húsnæðisstuðning.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning úr Strandabyggð
Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning úr Strandabyggð
Samþykkt og fært í trúnarbók.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning úr Strandabyggð
Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
3. Umsóknir um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15-17 ára barna
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning úr Strandabyggð
Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning úr Strandabyggð
Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning úr Strandabyggð
Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning úr Strandabyggð
Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning úr Strandabyggð
Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
Málefni fatlaðra
4. Umsókn um mótframlag til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra vegna sumardvalar barns úr Reykhólahreppi í Sumarbúðunum í Reykjadal.
Samþykkt og fært í trúnarðarbók.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:45
________________________________ __________________________________
Ingibjörg Emilsdóttir Unnsteinn Árnason
_______________________________ ___________________________________
Jenny Jensdóttir Vilberg Þráinsson
________________________________
Hrefna Þorvaldsdóttir