35. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps - 21. febrúar 2018
35.fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps var haldinn miðvikudaginn 21. 02.2018 kl. 16:30 að Höfðagötu 3 á Hólmavík. Mættir: Unnsteinn Árnason (Strandabyggð), Hlíf Hrólfsdóttir (Strandabyggð), Jenny Jensdóttir (Kaldrananeshreppi), Oddný Þórðardóttir (Árneshreppi) sem var í síma og María Játvarðardóttir félagsmálastjóri sem ritaði fundargerð.
Dagskrá
1. Hækkun á fjárhagsaðstoð
2. Umsóknir um fjárhagsaðstoð
1. Hækkun á fjárhagsaðstoð.
Fjárhagsaðstoð hjá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps hefur verið umtalsvert lægri en annars staðar á landinu. Á síðasta ári var fjárhagsaðstoð FSR fyrir einstakling á mánuði 141.282. Í Reykjanesbæ var hún 144.283 en í flestum hinum sveitarfélögunum 160.000 og hærri. Félagsmálastjóri lagði fram yfirlit yfir upphæðir sveitarfélaganna í landinu og lagði til hækkun á fjárhagsaðstoð þannig að hún verði sambærileg við sveitarfélögin í nágrenninu.
Samþykkt að hækka fjárhagsaðstoð fyrir einstakling í 160.000 á mánuði.
Einnig var rætt um að útfæra reglur nánar ef umsækjendur eru ekki með kostnað vegna húsnæðis og félagsmálastjóra falið að koma með tillögu fyrir næsta Velferðarnefndarfund.
Trúnaðarmál
2. Umsóknir um fjárhagsaðstoð
1.Sótt er um fjárhagsaðstoð í febrúar. Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
2.Sótt er um fjárhagsaðstoð í janúar til mars. Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
3.sótt er um aðstoð til að greiða orkureikning. Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
4.Sótt er um aðstoð við að greiða orkureikning. Samþykkt og fært í trúnaðarbók
5. Sótt er um fjárhagsaðstoð í febrúar og mars. Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
6. Umsókn um niðurfellingu skuldar við Reykhólahrepp. Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
Fleira ekki gert og fundi slitið 18:30
_______________________________ _________________________________
Unnsteinn Árnason Vilberg Þráinsson
________________________________ _________________________________
Jenny Jensdóttir Hlíf Hrólfsdóttir
________________________________
Oddný G. Þórðardóttir