3. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps 2. maí 2011
Mættir eru Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir (Strandabyggð), Andrea Björnsdóttir (Reykhólum), Hrefna Þorvaldsdóttir (Árneshreppi), Jenný Jensdóttir (Kaldrananeshreppur). Rósmundur Númason tilkynnti forföll. Ekki var unnt að fylla skarð annars fulltrúa Strandabyggðar.
Fundargerð ritaði: Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri.
Dagskrá fundar:
1. Táknmynd (Lógó) Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps
Velferðarnefnd samþykkir tillögu félagsmálastjóra um að efna til samkeppni um, lógó Félagsþjónustunnar. Velferðarnefnd mun vinna úr þeim tillögum sem berast.
Bókun:
„Velferðarnefnd samþykkir tillögu að efna til samkeppni um táknmynd fyrir Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla. Frestur er til 17.júní nk".
2. Samþykkt fyrir Velferðarnefnd
„Velferðarnefnd samþykkir samþykktina"
3. Verklag um meðferð opinberra gagna
Reglur félagsþjónustunnar um meðferð opinberra gagna er samþykkt
4. Trúnaðarmál
Niðurstaða skv. bókun í málinu færð í trúnaðarbók.
5. Trúnaðarmál
Niðurstaða skv. bókun í málinu færð í trúnaðarbók.
Önnur mál.
6. Þjónustuhópur aldraðra
Velferðarnefnd Stranda - og Reykhólahrepps telur mikilvægt að setja á stofn þjónustuhóp skv. lögum um málefnum aldraðra sem skipaður verður lækni, hjúkrunarfræðingi, félagsmálastjóra eða presti og fulltrúa eldri borgara frá hverju sveitarfélagi fyrir sig. Félagsmálastjóri mun hafa frumkvæði á því að hópurinn verði stofnaður.
7. Neyðarteymi
Velferðarnefnd Stranda og Reykhólahrepps leggur til að komið verði á fót neyðarteymi til að takast á við áföll einstaklinga á starfssvæði nefndarinnar. Félagsmálastjóri mun ræða við heilsugæsluna og presta starfssvæðanna varðandi aðkomu að slíku teymi.